NOTE: This article is more than 5 years old.
30 janúar 2008
/
Slysavarnafélagið 80 ára
Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra flutti ávarp í hófi sem haldið var í gær í tilefni af 80 ára afmæli Slysavarnafélags Íslands og arftaka þess, Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Ráðherra flutti heillaóskir og þakkir fyrir hið ómetanlega starf sem þúsundir manna hafi unnið undir merkjum félagsins frá stofnun þess. Þakkaði hann sérstaklega gott samstarf slysavarnafélagsins við stofnanir á vegum dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.
Sjá ávarp ráðherra hér.