NOTE: This article is more than 5 years old.
26 febrúar 2008
/
Breytingar í forstöðumannahóp ríkisins
Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 21. febrúar 2008 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.
Á undanförnum árum hafa átt sér stað töluverðar skipulagsbreytingar hjá ríkinu, þar sem stofnanir hafa ýmist verið sameinaðar, lagðar niður, eða nýjar settar á laggirnar. Þetta hefur áhrif á forstöðumannahóp ríkisins. Taflan hér fyrir neðan sýnir fjölda og kynjaskiptingu forstöðumanna ríkisstofnana í september 2005 og janúar 2008.
Kynjabókhald forstöðumanna 2005 og 2007
|
Ráðuneyti |
Karlar 2005 |
Konur 2005 |
Karlar 2007 |
Konur 2007 |
|---|---|---|---|---|
| Forsætisráðuneytið |
2 |
3 |
3 |
3 |
| Menntamálaráðuneytið |
35 |
19 |
36 |
17 |
| Utanríkisráðuneytið |
4 |
0 |
3 |
0 |
| Landbúnaðarráðuneytið |
10 |
0 |
||
| Sjávarútvegsráðuneytið |
5 |
1 |
||
| Sjávarútvegs- og landbúnaðraráðuneytið |
9 |
0 |
||
| Dóms- og kirkjumálaráðuneytið |
33 |
10 |
27 |
8 |
| Félags- og tryggingamálaráðuneytið |
8 |
6 |
8 |
7 |
| Heilbrigðisráðuneytið |
25 |
8 |
24 |
8 |
| Fjármálaráðuneytið |
20 |
1 |
17 |
3 |
| Samgöngumálaráðuneytið |
8 |
1 |
9 |
1 |
| Iðnaðarráðuneytið |
7 |
1 |
5 |
1 |
| Viðskiptaráðuneytið |
4 |
0 |
5 |
2 |
| Hagstofa Íslands |
1 |
0 |
||
| Umhverfisráðuneytið |
10 |
0 |
11 |
1 |
| Samtals |
172 |
50 |
157 |
51 |
| Kynjaskipting (%) |
77,5 |
22,5 |
75,5 |
24,5 |
Eins og sjá má eru forstöðumenn nú 206 talsins í stað 222, sem er fækkun um 16 á tímabilinu. Á þessu tímabili hefur fækkun í hópi forstöðumanna eingöngu verið meðal karla. Hlutfall kvenna hefur á tímabilinu hækkað úr 22,5% í 24,5%.
