NOTE: This article is more than 5 years old.
26 maí 2008
/

Dagur barnsins

Kæru börn og aðrir góðir gestir.

Ég óska ykkur, og okkur öllum, innilega til hamingju með daginn.

Mér finnst einstaklega gaman að fá að vera með ykkur hér í dag þegar dagur barnsins er haldinn hátíðlegur á Íslandi í fyrsta sinn.

Þótt ekki væri langur aðdragandi að hátíðahöldum á þessum fyrsta degi barnsins er augljóst að hugmyndin hefur fallið í frjóan jarðveg og viðtökur verið góðar. Margir hafa lagt hönd á plóg til að gera hann að sannkölluðum hátíðisdegi, börnum landsins til gleði og ánægju. Börnin eru í forgrunni í dag og þannig á það að vera.

Gleði og samvera eru einkunnarorð þessa dags og þau skulum við hafa hugföst, ekki aðeins í dag heldur alla daga. Samvera er það mikilvægasta sem við getum gefið börnunum okkar, og gildir það jafnt um samveru foreldra með börnum sínum og um afa og ömmur, systkini, frændur og frænkur og alla þá sem geta gefið börnum af tíma sínum og væntumþykju.

Við skulum alltaf muna að tími bernskunnar líður hratt. Þetta er afskaplega dýrmætur tími og við sem eigum börn sem standa okkur nærri vitum að honum verður ekki slegið á frest. Látum það ekki henda okkur að horfa til baka með eftirsjá yfir því að hafa ekki nýtt stundirnar með börnunum okkar.

Ég ætla ekki að halda langa ræðu nú. Við skulum nota tímann til að gleðjast saman og ég er full eftirvæntingar að sjá niðurstöður úr samkeppninni um einkennismerki og einkennisstef dags barnsins sem frú Dorrit Moussaieff eiginkonu forseta Íslands og verndari dagsins mun afhenda hér á eftir.

Setjum börnin í forgang og njótum gleði og samveru á þessum degi barnsins.