NOTE: This article is more than 5 years old.
26 maí 2008
/

Kynning veggspjalda með ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna

Kæru börn og aðrir góðir gestir.

Það er alveg sérstaklega skemmtilegt fyrir félags- og tryggingamálaráðherra að fá tækifæri til að ávarpa börn sérstaklega og við svona skemmtilegt tækifæri. Það gæti ég vel hugsað mér að gera oftar. Og ekki spillir nú ánægjunni fyrir mér að fá svo að heyra ykkur nemendur Laugarnesskóla syngja hér á eftir. Ég hlakka mikið til þess og ég hlakka líka til að heyra nokkur ykkar lesa texta af veggspjöldunum sem hér er verið að kynna.

Nú eru kannski einhver ykkar að heyra í fyrsta skipti um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, en helstu upplýsingar um efni hans eru á þessum skrautlegu og skemmtilegu veggspjöldum sem þið sjáið hér. Ykkur finnst örugglega merkilegt að úti í heimi hefur fólk frá fjöldamörgum löndum – ég held nærri tvö hundruð löndum – um víða veröld, hist til að ræða um réttindi barna.

Allt þetta fólk hefur talað um hvernig á að gæta þess að ekki sé farið illa með börn, hvernig eigi að sjá til þess að börnum líði vel og séu eins glöð og hamingjusöm og mögulegt er. Það er nefnilega þannig að börn eiga rétt á því að vera glöð og hamingjusöm. Þau eiga ekki að þurfa að bera sömu áhyggjur og fullorðið fólk. Þau eiga ekki að hafa áhyggjur af því hvort þau hafi húsaskjól, mat til að borða eða föt til að vera í.

Börn eiga ekki að þurfa að vinna í verksmiðjum þar sem er erfitt og óhollt að vera bara til að geta haft í sig og á. Því miður er þetta svona á mörgum stöðum í heiminum og þess vegna hafa allar þessar þjóðir tekið höndum saman og gert samkomulag um leiðir til að koma í veg fyrir vondar aðstæður hjá börnum eins og ég nefndi áðan.

Þið hafið örugglega öll lært um mannréttindi og þekkið hvað mannréttindi eru, en þar má til dæmis nefna rétt til fjölskyldu, rétt til friðhelgi einkalífs, rétt til skoðana- og tjáningarfrelsis og trúfrelsis. Í Barnasáttmálanum er meðal annars fjallað um þessi réttindi og minnt á að mannréttindi eru ekki bara fyrir fullorðið fólk heldur eiga börn alveg sama rétt og fullorðnir. Þetta gleymist stundum og því er mikilvægt að minna á réttindi barna og gæta þess að enginn brjóti réttindi þeirra.

Ég veit að börn á Íslandi hafa það langflest mjög gott, ganga í skóla, fara í skemmtileg sumarfrí með fjölskyldu og vinum, eiga margt og gera margt sem börn sums staðar annars staðar í heiminum geta ekki einu sinni látið sig dreyma um. En því miður eru líka börn á Íslandi sem hafa það ekki gott, eru beitt ofbeldi eða vanrækt á einhvern hátt. Barnasáttmálinn bannar hins vegar að þannig sé komið fram við börn og þess vegna er mjög mikilvægt að Íslendingar eru meðal þeirra næstum 200 þjóða sem hafa samþykkt að koma vel fram við börn eins og kveðið er á um í samningnum.

Ég ætla ekki að tala meira enda hefst bráðum söngurinn sem ég hlakka svo mikið til að heyra. Ég vil hins vegar að lokum minna ykkur öll á dag barnsins sem verður haldinn hátíðlega um allt land á sunnudaginn kemur. Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að sérstakur dagur barnsins skuli haldinn á hverju ári. Með þessum degi vonast ég til að við getum vakið sérstaka athygli á málefnum barna og eins að börn og fullorðnir verði sérstaklega dugleg að gera eitthvað skemmtilegt saman þennan dag.

Þakka ykkur fyrir að leyfa mér að koma í skólann til ykkar og ég vona að þið verðið öll glöð og hamingjusöm í lífinu.