Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um uppbyggingu hjúkrunarheimila
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um uppbyggingu hjúkrunarheimila
Um síðastliðin áramót var gerð breyting á lögum um málefni aldraðra í samræmi við breytta verkaskiptingu ráðuneyta. Samkvæmt lögunum fer félags- og tryggingamála-ráðuneytið með yfirstjórn öldrunarmála, þ.m.t. uppbyggingu hjúkrunarrýma, en heilbrigðisráðuneytið fer með yfirstjórn heilbrigðisþjónustu við aldraða.
Valfrelsi og sveigjanleiki
Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur frá upphafi ársins 2008 unnið ítarlega þarfagreiningu í samráði við sveitarfélög með það að markmiði að forgangsraða uppbyggingu hjúkrunarrýma og fækkun fjölbýla um land allt. Í þeirri vinnu var m.a. byggt á greiningu sem þegar hafði verið unnin í heilbrigðisráðuneytinu. Lögð verður áhersla á heildstæða, fjölbreytta og samhæfða þjónustu. Í vinnu ráðuneytanna hefur verið byggt á sveigjanleika og valfrelsi einstaklinga, m.a. með breyttri framkvæmd vistunarmats, og að við skipulag þjónustunnar sé ávallt leitast við að nota hentugasta þjónustustigið fyrir einstaklinginn og tryggja þannig sem best lífsgæði aldraðra. Þar er ekki síst lögð áhersla á heilbrigðisþjónustu í heimahúsum svo sem heimahjúkrun og skipulagða uppbyggingu dagvistar- og hvíldarinnlagna.
Aukinn stuðningur við aldraða í heimahúsum
Í þeirri áætlun sem hér er kynnt er byggt á heildarsýn og stefnumótun sem unnin hefur verið með fulltrúum hagsmunasamtaka og þeirra sem starfa í öldrunarþjónustu. Áætlunin byggir á fjölgun hjúkrunarrýma til þess að mæta brýnni þörf og uppsöfnuðum biðlistum, fækkun fjölbýla, fjölgun hvíldarinnlagnarýma og betri nýtingu rýma með nýju vistunarmati. Gert er ráð fyrir að allt að 15% af heildarfjölda hjúkrunarrýma á stofnunum verði nýtt til hvíldarinnlagna til að styðja við aldraða í heimahúsum og aðstandendur þeirra. Miðað við þessar tölur mun hvíldarinnlagnarýmum á landinu öllu fjölga verulega en þau eru í dag 65 að tölu. Dagvistarrýmum með endurhæfingu og rýmum fyrir heilabilaða aldraða mun jafnframt verða fjölgað.
Veruleg fækkun fjölbýla - hraðað uppbyggingu 400 nýrra hjúkrunarrýma
Félags- og tryggingamálaráðherra hefur í samráði við heilbrigðisráðherra lagt fram framkvæmdaáætlun sem byggir á ofangreindum markmiðum og stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að uppbyggingu 400 nýrra hjúkrunarrýma skuli hraðað og einbýlum fjölgað. Áætlunin er byggð á ítarlegri þarfagreiningu sem fram hefur farið um land allt í samvinnu við sveitarfélög. Í lok ársins 2009 verður þörf fyrir hjúkrunarrými endurskoðuð m.a. með tilliti til áhrifa af breytingum á vistunarmati og eflingar á heimaþjónustu.
Heildstæð öldrunarþjónusta
Á gildistíma áætlunarinnar verður unnið að styrkingu heildstæðrar öldrunarþjónustu um land allt með það að markmiði að gera sem flestum öldruðum kleift að búa í eigin húsnæði. Í því skyni mun heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við sveitarfélög og í samráði við félags- og tryggingamálaráðuneytið áfram vinna að áætlun um uppbyggingu samþættrar heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu sem liggja skal fyrir í janúar 2009 fyrir landið allt. Áhrif þeirrar áætlunar verða metin í lok árs 2009 og áætlun um fjölgun hjúkrunarrýma jafnframt endurskoðuð ef ný þarfagreining veitir vísbendingar um breytta þörf eða eftirspurn eftir þjónustu í þágu aldraðra.
Fjölbreyttari fjármögnunarleiðir og endurskoðun 2009
Endanlegur kostnaður við þá uppbyggingu sem framkvæmdaáætlunin tekur til mun ekki liggja fyrir fyrr en að lokinni endurskoðun áætlunarinnar í árslok 2009. Ef miðað er við þörfina eins og hún liggur nú fyrir er áætlaður stofnkostnaður ríkis, sveitarfélaga og sjálfseignarstofnana við fjölgun hjúkrunarrýma samkvæmt áætluninni um 17 milljarðar króna sem dreifist að hluta til á allt að 25 ár. Ástæða þess er sú að verulegur hluti uppbyggingarinnar er fjármagnaður með leigugreiðslum í stað stofnkostnaðarframlags á fjárlögum. Dregið gæti úr þeim kostnaði með aukinni uppbyggingu heimahjúkrunar og heimaþjónustu, en m.a. í ljósi þeirrar uppbyggingar mun áætlunin endurskoðuð í lok ársins 2009.
Næstu skref
Ásmundi Stefánssyni, ríkissáttasemjara, hefur verið falið að stýra vinnu þar sem leitað verður nýrra leiða við fjármögnun á uppbyggingu á fjölbreyttum búsetu- og þjónustuúrræðum, þ.m.t. hjúkrunarrýmum fyrir eldri borgara, með það að markmiði að gera fjármögnun þjónustunnar gagnsærri og innleiða hvata til að styðja við markmið og stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum aldraðra og kveða skýrar á um skiptingu verkefna og ábyrgðar. M.a. verða skoðaðar leiðir til að einstaklingar geti eignast tímabundinn búseturétt í húsnæði þar sem öldrunarþjónusta er veitt eða er aðgengileg. Jafnframt að taka til endurskoðunar núgildandi fyrirkomulag greiðsluþátttöku einstaklinga sem dveljast á öldrunarstofnunum þannig að mannréttindi og fjárhagslegt sjálfstæði einstaklinga verði tryggt.
Reykjavík 12. ágúst 2008