NOTE: This article is more than 5 years old.
21 ágúst 2008
/

Euronews 18, fréttabréf Evrópumiðstöðvar fyrir þróun í sérkennslu

Hjálagt er nýjasta fréttabréf Evrópumiðstöðvar fyrir þróun í sérkennslu (The European Agency for Development in Special Needs Education), EuroNews nr. 18, sem gefið hefur verið út á þjóðtungum allra þeirra landa sem aðild eiga að miðstöðinni.

Þetta tölublað EuroNews er helgað efni og myndum frá þingi ungs fólks með sérþarfir frá 29 Evrópulöndum sem haldið var í Portúgal. Ungar raddir: Til móts við fjölbreytni meðal nemenda.

Þess er vænst að fréttabréfið verði kynnt í stofnun yðar eða samtökum.

Einnig er bent á vefsíðu Evrópumiðstöðvarinnar en þar er aðgengilegt margs konar efni um sérkennslumál í Evrópu, alls konar samantektir og skýrslur ásamt upplýsingum um sérkennslumál í einstökum Evrópulöndum www.european-agency.org.

Bryndís Sigurjónsdóttir skólameistari Borgarholtsskóla er sérstakur samstarfsaðili Evrópumiðstöðvarinnar fyrir Íslands hönd. Fyrirspurnum skal beint til hennar í netfangið: [email protected]