NOTE: This article is more than 5 years old.
22 ágúst 2008
/

Reglugerð um fjareftirlit

FRÉTTATILKYNNING.

            Að gefnu tilefni vill sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið vekja athygli á reglugerð um fjareftirlit. Samkvæmt reglugerðinni er öllum íslenskum skipum sem hafa leyfi Fiskistofu til að stunda fiskveiðar í atvinnuskyni innan og utan lögsögu Íslands skylt, frá 1. september 2008, að senda með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslunnar og Fiskistofu upplýsingar um staðsetningu, stefnu og hraða viðkomandi skips.

Sjá reglugerð.

 

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu 22. ágúst 2008.