NOTE: This article is more than 5 years old.
21 nóvember 2008
/

Styrkir til háskólanáms í Ungverjalandi

Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í Ungverjalandi bjóða erlendum námsmönnum skólaárið 2009-2010.

Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í Ungverjalandi bjóða erlendum námsmönnum skólaárið 2009-2010. Bæði er um að ræða styrki til háskólanáms og rannsóknarstarfa, auk styrkja til sumarnámskeiða. Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver styrkur kemur í hlut Íslendinga. Menntamálaráðuneyti framsendir umsóknir er uppfylla skilyrði sem nánar eru tilgreind í upplýsingum um styrkina. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu og einnig á vefnum www.scholarship.hu.

  • Umsóknarfrestur er til 15. mars nk.

Umsóknir skal senda til menntamálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknum fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum og læknisvottorði.