NOTE: This article is more than 5 years old.
10 febrúar 2009
/

Formennska í bankastjórnum Glitnis hf. og Kaupþings hf.

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 7/2009

Formenn bankastjórna Nýja Glitnis, Magnús Gunnarsson, og Nýja Kaupþings, Valur Valsson, hafa í dag óskað eftir að verða leystir frá störfum í stjórnum bankanna.

Fjármálaráðherra hefur óskað eftir því við þá að þeir endurskoði þessar ákvarðanir sínar og gegni störfum þessum áfram a.m.k. fram að aðalfundum bankanna í apríl n.k.

Reykjavík 10. febrúar 2009