NOTE: This article is more than 5 years old.
10 mars 2009
/

Auglýsing sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um veitingu leyfa til hrefnuveiða árið 2009

Með auglýsingu þessari vill ráðuneytið gefa aðilum kost á að sækja um leyfi til hrefnuveiða en skilyrði fyrir veitingu leyfanna koma fram í reglugerð nr. 263/2009 um breytingu á reglugerð nr. 163 30. maí 1973, um hvalveiðar.

Skilyrði fyrir veitingu leyfa til hrefnuveiða eru eftirfarandi:

Að minnsta kosti einn úr áhöfn hafi reynslu af hrefnuveiðum. Skyttur sem annast veiðar og aflífun dýra skulu hafa sótt viðurkennt námskeið í meðferð skutulbyssa og sprengiskutla og í aflífunaraðferðum við hvalveiðar. Auk þessa skal skytta hafa fullnægjandi skotvopnaleyfi.

 

Þá er kveðið á um veiðiaðferðir og veiðibúnað sem skip sem ætluð eru til hrefnuveiða skulu vera búin í reglugerð nr. 263/2009 um breytingu á reglugerð nr. 163 30. maí 1973, um hvalveiðarm með síðari breytingum.

 

Umsóknir um leyfi til hrefnuveiða skulu sendar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík.