NOTE: This article is more than 5 years old.
24 mars 2009
/
Skipun skólameistara við Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Menntamálaráðherra hefur skipað Skúlínu Hlíf Kjartansdóttur í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga til fimm ára frá 1. apríl 2009 að telja að fenginni umsögn skólanefndar skólans. Tíu umsóknir bárust um embætti skólameistara fjölbrautaskólans.