NOTE: This article is more than 5 years old.
24 maí 2009
/

Ársfundur Nýsköpunarsjóðs

Kæru ársfundargestir,

Það er mér sönn ánægja að vera með ykkur hér í dag. Það er jákvætt að sjá þá jöfnu veltuaukningu sem mörg þeirra fyrirtækja sem Nýsköpunarsjóður hefur fjárfest í eru að sýna. Mikilvægi nýsköpunar í eflingu atvinnulífsins hefur aldrei verið meira en einmitt nú og gegnir Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins þar veigamiklu hlutverki. Sjóðurinn hefur verið fyrsti fjárfestir í mörgum sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum og skipt sköpum fyrir framtíð margra vænlegustu fyrirtækja landsins.

Nú er svo komið að eitt þessara fyrirtækja hefur brotið milljarðs múrinn, þ.e. hefur náð ársveltu sem er meiri en milljarður. Slíkur árangur er eftirtektarverður og mikilvæg fyrirmynd fyrir aðra að fylgja. Í tilefni af þessum frábæra árangri hefur stjórn Nýsköpunarsjóðs ákveðið að veita hvatningarverðlaun sem bera heitið “Milljarðamærin”. Þessi viðurkenning er nú veitt í fyrsta sinn, en hún verður veitt fyrirtækjum þar sem eignarhlutur sjóðsins er meiri en 10%. Ég vona svo sannarlega að við eigum eftir að sjá mörg fyrirtæki ná þessu marki í framtíðinni.

Það fyrirtæki sem hefur náð þessum árangri er hönnunar- og fataframleiðslufyrirtækið NIKITA. Nikita er flestum okkar vel þekkt enda hefur það á síðustu árum hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir vel heppnaða hönnun og markaðssetningu. Ég vil biðja tvo af stofnendum Nikita, þau Aðalheiði Birgisdóttur og Rúnar Ómarsson, að koma hér upp til að taka við fallegu listaverki Steinunnar Þórarinsdóttur sem hún nefnir Milljarðamærina. Auk þess færir Nýsköpunarsjóður starfsmannafélagi Nikita eina milljón króna að gjöf til að undirstrika að á bak við þennan glæsilega árangur stendur samstilltur hópur öflugra starfsmanna.

Fatahönnunarfyrirtækið Nikita á rætur sínar að rekja til brettaverslunarinnar Týnda hlekksins, sem starfrækt var í Reykjavík á árunum 1994 til 1999. Aðalheiður Birgisdóttir hafði lengi hannað og saumað eigin fatnað og hélt því áfram eftir að hún eignaðist hlut í versluninni. Meðeigendur hennar þeir Rúnar Ómarsson og Valdimar Kr. Hannesson höfðu öðlast talsverða reynslu í innflutningi, markaðssetningu, áætlanagerð og rekstri. Árið 1997 til 1999 hannaði Aðalheiður, eða Heiða eins og hún er oftast kölluð, litla vörulínu sem framleidd var á Húsavík og í eigin verslun í Reykjavík. Móttökurnar voru góðar og óx framleiðslan og salan úr fimmtíu stykkjum árið 1997 í rúmlega eitt þúsund stykki árið 1999.

Verslunin Týndi hlekkurinn var að lokum seld og allt tiltækt fé sett í sölugögn fyrir ferð á fyrstu vörusýninguna erlendis. Í ársbyrjun átti þríeykið enga verslun og ekkert fjármagn en höfðu fyrirliggjandi pantanir í rúmlega 1.500 stykki af Nikita vörum sem afhenda átti um haustið. Í leit að fjárfestum komu þau til Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Fulltrúar sjóðsins tóku vel í erindi Nikita og kváðust reiðubúnir til samninga ef stofnendur fyrirtækisins finndu annan fjárfesti með þeim. Eftir nokkurra vikna kynninga- og samningaþóf náðist niðurstaða um að félagið væri eitt hundrað milljón króna virði og eignuðust fjárfestarnir tveir samtals 40% í fyrirtækinu.

Með þessar fjörutíu milljónir gat fyrirtækið loksins sett þann kraft í starfsemina sem nauðsynlegur var til að ná árangri á alþjóðlegum mörkuðum. Viðbrögðin voru frá upphafi mjög góð og á fyrstu þremur árum fyrirtækisins voru vörur þess komnar í sölu í 15 löndum og var veltuaukningin hröð.

Í dag eru tæplega fjörutíu starfsmenn í fjórum löndum við hönnun, vöruþróun, markaðssetningu, sölu, dreifingu og fjármál auk ýmissa tengdra starfa. Félagið er með öfluga starfsemi í Reykjavík, Hamborg, San Francisco og Hossegor í Frakklandi. Vörur Nikita eru fáanlegar í yfir 1.500 verslunum í rúmlega 30 löndum og í yfir fjörutíu netverslunum. Á hverjum degi seljast að meðaltali um eitt þúsund og fimm hundruð flíkur. Vörumerkið Nikita er vel þekkt alþjóðlega meðal markhóps félagsins og framtíðarmöguleikar fyrirtækisins miklir.

Við skulum óska þeim innilega til hamingju með þennan árangur með lófataki.