NOTE: This article is more than 5 years old.
29 maí 2009
/

Nýr aðstoðarmaður iðnaðarráðherra


Arnar Guðmundsson
Arnar Gudmundsson aðstoðarmaður iðnaðarráðherra

Arnar Guðmundsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra.

Arnar hefur starfað í Hagfræðideild Landsbankans, hjá Fjárfestingarstofunni og Útflutningsráði Íslands, Aflvaka hf. - atvinnuþróunarfélagi Reykjavíkur og sem upplýsingafulltrúi, ritstjóri og blaðamaður, m.a. hjá Alþýðusambandi Íslands. Arnar er 43 ára og er með meistaragráðu í menningarfræðum frá Birmingham háskóla 1994 og BA í fjölmiðlafræði og bókmenntum frá HÍ 1990.

Arnar er í sambúð með Guðrúnu Katrínu Bryndísardóttur og eiga þau tvær dætur.