NOTE: This article is more than 5 years old.
30 maí 2009
/
Lenging Akureyrarflugvallar malbikuð

Kristján L. Möller samgönguráðherra kynnti sér stöðu framkvæmdanna á dögunum í fylgd Sigurðar Hermannssonar, umdæmisstjóra Flugstoða á Norðurlandi. Flugbrautin er lengd um 550 metra til suðurs og gert tilskilið öryggissvæði við hlið brautar og enda. Malbikun á að ljúka síðari hluta júní og verður þá gengið frá hliðarsvæðum og unnið við uppsetningu ljósa og annars búnaðar.
Lengri flugbraut gefur möguleika á flugi með stærri og burðarmeiri flugvélum um Akureyrarflugvöll sem gefur möguleika á auknu farþega- og fraktflugi milli landa.
| Sigurður Hermannsson, umdæmisstjóri Flugstoða (til vinstri), sýndi Kristjáni L. Möller samgönguráðherra hvernig miðar lengingu Akureyrarflugvallar en verkinu á að ljúka uppúr miðju sumri. |
![]() |
![]() |

