NOTE: This article is more than 5 years old.
21 ágúst 2009
/

Vinnuhópur um makrílveiðar

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að setja á fót vinnuhóp til þess að fara yfir makrílveiðar íslenska skipaflotans í ár og í fyrra og vinna greinargerð um framkvæmd veiðanna sem nýst geti til ráðgjafar við að móta til framtíðar skipulag veiða og vinnslu á makríl. Jafnframt að draga saman eftir föngum upplýsingar um stöðu makrílstofnsins og dreifingu innan íslenskrar fiskveiðilögsögu.  Hópnum er ætlað að skila greinargerð um miðjan september 2009.

 

Hópinn skipa:

Steinar I. Matthíasson, skrifstofustjóri sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,  formaður

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna,

Sigurjón Arason, verkefnastjóri, MATÍS,

Sveinn Sveinbjörnsson, fiskifræðingur, Hafrannsóknastofnuninni og

Þórhallur Ottesen, deildarstjóri, Fiskistofu.