NOTE: This article is more than 5 years old.
11 september 2009
/

Mikilvægi fundamarkaðarins

Ráðstefnustjóri, góðir gestir, - dear speakers of the day.

Mér er það einstök ánægja að fá að ávarpa þennan fund ykkar hér í dag en þetta er í fyrsta sinn síðan ég tók við embætti ráðherra ferðamála sem ég hitti svo marga úr greininni samtímis. Ég vil því nota tækifærið til að þakka SAF fyrir gott samstarf frá því í vor og góðar ábendingar um það sem betur má fara í ferðamálunum. Við hljótum öll að fagna því sérstaklega á þessu umbrotaári að nýliðinn ágúst sé besti ágústmánuður í ferðaþjónustunni frá upphafi.

Eins og margoft hefur komið fram horfa stjórnvöld til ferðaþjónustunnar sem einnar af lykil atvinnugreinum framtíðarinnar. Ríkisstjórnin gefur þessari grein meira vægi í sínum stjórnarsáttmála en við höfum áður séð.

Til að festa ferðaþjónustuna í sessi sem eina af megin stoðunum undir hagkerfi okkar og gera hana að heilsársatvinnuvegi þurfum við aðhorfa til hinna fjölmörgu þátta innan greinarinnar, afþreyingar, menningar, heilsu- eða lífstílstengdrar, náttúruupplifana og svo framvegis.

Ráðstefnumarkaðurinn er einn af þessum lykilþáttum. Hann tilheyrir svokölluðum Meetings Market, það er ráðstefnu, funda, sýninga og hvataferðamarkaði og hefur almennt verið viðurkenndur sem arðbærasti hluti ferðaþjónustunnar.

Til að við getum skilgreint betur vægi þessa hluta ferðaþjónustunnar þarf að afla upplýsinga um umfang þeirra ráðstefna sem haldnar eru og kanna t.d. væntingar og neyslu þessa hóps sérstaklega.

Ráðstefnuskrifstofa Íslands heldur utan um tölfræðilegar upplýsingar af þessu tagi en slík vinna krefst eðlilega samstarfs við þá sem standa að ráðstefnuhaldi. Talnagögn um ráðstefnur er mikilvægt tæki til að afla skilnings á þessari grein ferðaþjónustunnar, bæði hjá fjárveitingarvaldinu og þeim sem vilja gera sig gildandi á þessum markaði.

Við stöndum nú á ákveðnum tímamótum vegna þeirra miklu möguleika sem skapast með tilkomu Ráðstefnu- og tónlistarhúss í Reykjavík. Ég dreg enga fjöður yfir það að persónulega hef ég lýst yfir efasemdum um réttmæti þessarar fjárfestingar við núverandi aðstæður. En ákvörðun liggur fyrir og þá er bara að spýta í lófana. Verkefnið framundan að sameinast um að tryggja að fjárfestingin verði arðbær og virki fyrir ferðaþjónustuna og hagkerfið í heild.

Rannsóknir sýna að eftir opnun stórra ráðstefnuhalla tekur markaðurinn við sér og ráðstefnum og fundum fjölgar. En þetta gerist ekki af sjálfu sér. Því er mikilvægt að við sem komum að stjórn ferðamála, og ekki síður þið sem í greininni starfið, nýtum okkur þá möguleika sem verða til með opnun Ráðstefnu- og tónlistarhússins hér við Austurhöfnina og ráðstefnu- og menningarhússins Hofs á Akureyri sem verður vígt í lok ágúst á næsta ári.

Með tilkomu þessara húsa verður hægt að hafa umgjörðina enn glæsilegri og sérstakari en hingað til auk þess sem vonandi verður hægt að bjóða upp á dagskrá með færustu listamönnum sem gleðja munu enn frekar kröfuharðan hóp viðskiptavina okkar. Það samspil náttúruupplifunar og ráðstefnuhalds sem er aðalsmerki þessarar tegundar ferðaþjónustu mun fá menninguna sem viðbótarstoð.

Með þessu móti fáum við vonandi stærri ráðstefnur, aukin umsvif utan háannar með betri nýtingu fjárfestinga - og stórauknar gjaldeyristekjur.

Heildarvelta fundarmarkaðarins er mikil en hlutur Íslands í henni er mjög lítill. Samkeppnin á þessu sviði er hörð en við eigum mikla möguleika á því að stækka, dafna og auka gjaldeyristekjunnar af þessum hluta ferðaþjónustunnar svo um munar.

Þarna liggja því ónýtt tækifæri sem gerir umræðuefni þessarar ráðstefnu hér í dag verulega brýnt. Aðgerðir til að fjölga fundum og ráðstefnum hér á landi kalla nefnilega, eins og allt annað, á sameiginlegt átak okkar allra.

Ég hef náð því að auka fjármagn til landkynningar eins og glöggt má sjá í auglýsingum sem birtar voru í fjölmiðlum í gær þar sem leitað er eftir samstarfi við fyrirtæki um kynningarmál en iðnaðarráðuneytið, Ferðamálastofa, Útflutningsráð og Reykjavíkurborg hafa lagt í sameiningu fram 50 milljónir króna til að byggja undir slíkt samstarf sem fara mun fram í október, nóvember og desember.

Hlutverk Ráðstefnuskrifstofu Íslands er að markaðssetja Ísland á alþjóðamarkaði sem ákjósanlegan áfangastað til ráðstefnuhalds og hvataferða. Auk þess ber skrifstofunni að vekja áhuga Íslendinga í alþjóða-samskiptum á að halda ráðstefnur og fundi sinna fagfélaga hér á landi. RSÍ er nokkurs konar samlag margra aðila sem hagsmuna eiga að gæta á ráðstefnu- og fundamarkaði. Og framkvæmdastjórinn er röskur og metnaðargjarn fyrir hönd þessa málaflokks.

Þaulreynd og árangursrík leið til að fá hingað fundi og ráðstefnur er að virkja þá Íslendinga sem eru meðlimir í erlendum samtökum til að bjóða fram Ísland sem ákjósanlegan stað fyrir næstu ráðstefnu. Þessi leið hefur kannski aldrei verið mikilvægari enda erum við öll sendiherrar Íslands þegar við erum í erlendum samskiptum og með því að bjóðast til að vera gestgjafar fyrir fundi og ráðstefnur sýnum við umheiminum fram á að hingað sé gott að koma og að við séum enn sem fyrr stolt af landinu okkar.

Eitt sterkasta vopn stjórnvalda í heildarkynningu landsins er frumvarp um stofnun Íslandsstofu sem utanríkisráðherra mun mæla fyrir á Alþingi í haust.

Hlutverk Íslandsstofu er að vera samstarfsvettvangur fyrirtækja, hagsmunasamtaka, stofnana og stjórnvalda um stefnu og aðgerðir til þess að efla ímynd og orðspor Íslands. Við lítum til Íslands sem eftirsóknarverðs áfangastaðar fyrir ferðamenn, gestgjafa funda og ráðstefna, upprunlands vöru, þjónustu og menningar eða staðsetningar fyrir fjárfestingu og atvinnuupbyggingu. Með því að samnýta kraftana og samræma kynningar- og upplýsingarmál geta öll þessi svið stutt hvert annað.

Þið sjáið skyldleikann við Iceland Naturally aðferðafræðina en að þessu samstarfi munu auk iðnðarráðuneytis koma utanríkisráðuneyti og menntamálaráðuneyti. Þessir aðilar og margir fleiri starfa nú að landkynningarmálum í einhverri mynd. Ég get nefnt Ferðamálastofu, Útflutningsráð, Fjárfestingarstofu og markaðsskrifstofur skapandi greina.

Ég bind vonir við að sú nánd við viðskiptalífið, hvort sem er útflutningsgreinarnar eða verkefni Fjárfestingarstofunnar, sem Íslandsstofa getur skapað, verði veruleg lyftistöng fyrir markaðssetningu funda og ráðstefna á Íslandi. Kynning á jákvæðu starfsumhverfi fyrirtækja og skilvirku samfélagi er um leið aðdráttarafl fyrir ráðstefnur og svo öfugt. Yfir slík tækifæri þurfum við að fara með þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem aðild eiga að Ráðstefnuskrifstofu Íslands.

Grunnhugmyndin með Íslandsstofu er að styrkja og samhæfa ímyndar- og kynningarmál þjóðarinnar, einfalda þau og gera bæði hagkvæmari og skilvirkari. Hlutverk Íslandsstofu verður að fylgjast með ímynd Íslands og þróun hennar, miðla samræmdum skilaboðum og upplýsingum til uppbyggingar á sterkri og jákvæðri ímynd, bregðast við neikvæðri umfjöllun sem snertir íslenska hagsmuni og samræma aðgerðir er varða ímyndarmál.

Einn áfanginn í þessu ferli og aukinni samvinnu við utanríkisþjónustuna er að skrifstofur Ferðamálastofu í Evrópu hafa þegar verið lagðar niður og starfsemi þeirra færð til sendiráðannna á Norðurlöndum og í Þýskalandi til að byrja með. Þarna er einnig horft til þess hve samstarfið á milli utanríkisþjónustunnar og Ferðamálastofu hefur verið kraftmikið og gjöfult í New York. Auk þess kalla núverandi aðstæður í efnahagslífinu á að við leitum allra leiða til að auka hagkvæmni.

Von mín er sú að stofnun Íslandsstofu verði til þess að færa fjármuni úr rekstri og yfir í kynningarverkefni. Svo þurfum við ykkur í ferðaþjónustunni, ekki síst þau ykkar sem vinna að því að fá hingað ráðstefnur, fundi og hópa í hvataferðir, til að leggja átakinu lið með eigin verkefnum, fjárframlögum og hugmyndavinnu.

Þannig náum við árangri.

I wish the Meeting Market all the best in the future and you all a prosperous conference here today!

Ég óska ykkur velgengni á ráðstefnu ykkar hér í dag og í starfinu framundan.