NOTE: This article is more than 5 years old.
09 nóvember 2009
/

Heilsutæknigarðurinn KÍM

Góðir gestir

Það er mér sérstök ánægja að bjóða ykkur velkomin hingað í KÍM, nýtt og glæsilegt frumkvöðlasetur á sviði heilbrigðistækni og skyldra greina.

Vísinda- og tæknigarðar á borð við þennan hafa hvarvetna reynst mikil lyftistöng fyrir nýsköpun og stutt frumkvöðla og sprotafyrirtæki þannig að þróunarbrautin frá hugmynd að vöru eða þjónustu verður styttri og greiðfærari.

Hér á landi hefur Tæknigarður Háskóla Íslands fóstrað mörg öflug fyrirtæki og Líftæknihúsið á Keldnaholti hefur stutt við líftæknigeirann.

Þegar við leitum að styrkleikum okkar og sérstöðu sem byggja má á verðmætasköpun til framtíðar blasir heilbrigðisgeirinn við. Hér höfum við náð frábærum árangri með vel menntuðu starfsfólki sem gjarnan hefur sótt sér menntun til bestu fræðastofnana heims, beggja vegna Atlantshafsins.

Ör vöxtur greina á borð við líftækni og upplýsingatækni auk eflingar háskóla, styður sóknarfæri okkar á þessu sviði.

KÍM heilsutæknigarður verður lifandi samfélag margra framsækinna fyrirtækja þar sem frumkvöðlar og sérfræðingar útfæra hugmyndir sínar og njóta um leið stuðnings og handleiðslu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Við væntum þess að KÍM verði bæði vettvangur fyrir meistara- og doktorsnema og stuðli að samvinnu háskólanna. KÍM verður einnig hluti af alþjóðlegu samstarfsnemi vísinda- og tæknigarða á sviði heilbrigðistækni.

Með þessari opnun hér lýkur ákveðnum áfanga hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands en hann hófst við upphaf erfiðleikanna í efnahagslífinu. Þá mótaði Nýsköpunarmiðstöðin sér stefnu um opnun frumkvöðlasetra. Þau fyrstu voru sett á laggirnar með samningum við samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja.

KÍM er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, iðnaðarráðuneytisins, Háskólans í Reykjavík, Háskóla Íslands og fasteignafélagsins Summit ehf.

Til að vinna samfélagið út úr efnahagsþrengingum í kjölfar hruns fjármálakerfisins er brýnt að styðja sérstaklega við nýsköpunarstarf þar sem þekking er nýtt til að skapa aukin verðmæti.

Til viðbótar við hin öflugu viðbrögð Nýsköpunarmiðstöðvar við fjármálahruninu, sem vakið hafa eftirtekt út fyrir landsteinana, hafa stjórnvöld lagt mikla áherslu á nýsköpun.

Nú eru til meðferðar hjá Alþingi tvö frumvörp sem miða að því að bæta samkeppnisskilyrði nýsköpunarfyrirtækja með skattafrádrætti vegna rannsóknar- og þróunarverkefna innan fyrirtækja eða fjárfestinga í nýsköpunarfyrirtækjum.

Eftir slíkum aðgerðum hefur verið kallað lengi enda sambærilegar

ráðstafanir við lýði í meira en 20 OECD ríkjum.

Ég bind miklar vonir við að þessi aukni stuðningur og starf tæknigarða á borð við þennan hér muni skila okkur bæði aukinni þekkingu og verðmætum.

Að lokum vil ég óska aðstandendum KÍM og frumkvöðlunum, til hamingju með heilsutæknigarðinn.

Megi þessi garður, orðspor hans og þau glæsilegu fyrirtæki sem hér hafa aðstöðu, vaxa og dafna á komandi árum.