NOTE: This article is more than 5 years old.
19 nóvember 2009
/

Nýstárlegar hugmyndir í ferðaþjónustu


Ráðherra ávarpar fund um mögulega nýtingu Þríhnúkagígs
Ráðherra ávarpar fund um mögulega nýtingu Þríhnúkagígs.

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra ávarpaði fund á vegum bæjarstjórnar Kópavogs, VSÓ Ráðgjafar og Náttúrurfræðistofu Kópavogs í Salnum s.l. miðvikudag. Þar fór fram kynning á mögulegri nýtingu Þríhnúkagígs í þágu ferðamennsku og fræðslu um náttúru Íslands.

Ríflega 200 manns mættu og hlýddu á bræðurna Árna og Einar Stefánssyni kynna verkefnið.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra var einnig viðstödd kynninguna ásamt bæjarstjóranum í Kópavogi, Gunnsteini Sigurðssyni.

Hér má sjá nánari lýsingu á verkefninu: