NOTE: This article is more than 5 years old.
23 nóvember 2009
/

Fimm sækjast eftir landlæknisembætti

Fimm sækja um embætti landlæknis sem auglýst var fyrir skemmstu, fjórir karlar og kona. Þeir sem sækjast eftir embætti landlæknis eru:

  • Finnbogi O. Karlsson, læknir. Hann rekur lækningastofu í efnaskipta- og innkirtlalækningum í Arkansas í Bandaríkjunum.
  • Geir Gunnlaugsson, læknir. Hann er prófessor við Kennslufræði- og lýðheilsudeild Háskólans í Reykjavík.
  • Kristján Oddsson, læknir. Hann er aðstoðarlandlæknir.
  • María Heimisdóttir, læknir.  Hún er yfirlæknir á hag- og upplýsingasviði Landspítala.
  • Ragnar Jónsson, læknir.  Hann er sjálfstætt starfandi bæklunarskurðlæknir á eigin læknastofu.

Heilbrigðisráðherra skipar landlækni til fimm ára í senn að fengnu mati nefndar skv. 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Nefndin metur hæfni umsækjenda en fulltrúar í nefndinni hafa þekkingu á rekstri, starfsmannamálum, stjórnsýslu og heilbrigðisþjónustu.

Í auglýsingu um starfið er krafist sérfræðimenntunar í læknisfræði og víðtækrar reynslu eða menntunar á sviði stjórnunar. Embættið er undir yfirstjórn heilbrigðisráðherra og er markmið með starfrækslu þess að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og stuðla að heilbrigði landsmanna. Landlæknir ber ábyrgð á því að embættið starfi í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli.

Hlutverk landlæknis er m.a. eftirfarandi:

  • Að veita ráðherra og öðrum stjórnvöldum, heilbrigðisstarfsfólki og almenningi  ráðgjöf um heilbrigðismál.
  • Að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu.
  • Að hafa eftirlit með heilbrigðisstarfsmönnum.
  • Að hafa eftirlit með lyfjaávísunum og fylgjast með og stuðla að skynsamlegri lyfjanotkun landsmanna.
  • Að veita starfsleyfi til einstaklinga sem uppfylla skilyrði laga og reglugerða til notkunar starfsheita löggiltra heilbrigðisstétta.
  • Að safna og vinna upplýsingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu.
  • Að fylgjast með heilbrigði landsmanna.
  • Að vinna að gæðaþróun innan heilbrigðisþjónustu.
  • Að sinna kvörtunum almennings vegna heilbrigðisþjónustu.
  • Að stuðla að því að menntun heilbrigðisstarfsmanna sé í samræmi við kröfur heilbrigðisþjónustunnar á hverjum tíma.
  • Að stuðla að rannsóknum á sviði heilbrigðisþjónustu.
  • Að sinna öðrum verkefnum sem honum eru falin samkvæmt lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eða ákvörðun ráðherra.

Fram kom í auglýsingu um starfið að skipulag og verkaskipting stjórnsýslustofnana heilbrigðisráðuneytisins væri til endurskoðunar, m.a. í þeim tilgangi að efla eftirlit með gæðum heilbrigðisþjónustu og styrkja forvarnir og er sagt að endurskoðunin kunni að leiða til breytinga á starfsemi embættisins.

Sérstök matsnefnd fær nú umsóknirnar til umfjöllunar. Hún skilar heilbrigðisráðherra áliti sínu á umsækjendum og þá fyrst getur ráðherra tekið ákvörðun um hver verður næsti landlæknir. Skipað er í stöðu landlæknis til fimm ára frá 1. janúar 2010.