NOTE: This article is more than 5 years old.
03 mars 2010
/

Dómsmálaráðherra á fundi með erlendum fréttamönnum


Frá blaðamannafundinum sem haldinn var í Iðnó.
Frá blaðamannafundinum sem haldinn var í Iðnó.

Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra fundaði í dag með erlendum blaða- og fréttamönnum sem komnir eru hingað til lands til að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslunni næstkomandi laugardag. Kynnti ráðherra framkvæmd atkvæðagreiðslunnar, sem er á hendi ráðuneytisins eins og aðrar kosningar hér á landi, fjallaði um embætti sérstaks saksóknara og fleira. Einnig var lagt fram kynningarefni á ensku sem unnið var um þjóðaratkvæðagreiðsluna, ástæður hennar og afleiðingar, af Lagastofnun Háskóla Íslands að beiðni dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins.

Fjöldi frétta- og blaðamanna er þegar kominn hingað til lands til að fylgjast með atkvæðagreiðslunni og hefur utanríkisráðuneytið haft veg og vanda af skipulagningu dagskrár af því tilefni.