NOTE: This article is more than 5 years old.
04 maí 2010
/
Lausnir fyrir lántakendur – Fundaröð félags- og tryggingamálaráðherra
Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, stendur á næstu vikum fyrir tíu borgarafundum sem haldnir verða víðs vegar um landið. Árni Páll mun fjalla um skuldastöðu heimilanna, kynna helstu úrræði og svara fyrirspurnum.
Ráðist hefur verið í margvíslegar aðgerðir til að mæta erfiðleikum einstaklinga og fjölskyldna sem eiga í fjárhagsvanda. Auk þess að kynna fyrirliggjandi úrræði mun ráðherra gera grein fyrir aðgerðum sem boðaðar hafa verið og felast meðal annars í bættri löggjöf um skuldaaðlögun, stofnun umboðsmanns skuldara, verulegum úrbótum á stöðu fólks með erlend bílalán og aðgerðum í húsnæðismálum.
Lögfræðingur og ráðgjafi frá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna verða til viðtals á öllum borgarafundunum.
Dagskrá:
| Dagur | Svæði | Staður | Tími |
|---|---|---|---|
| 4. maí | Reykjanesbær | Ráin | 20:30 – 22:00 |
| 5. maí | Vestmannaeyjar | Kiwanishúsið | 20:30 – 22:00 |
| 6. maí | Kópavogur | Salurinn | 20:30 – 22:00 |
| 10. maí | Árborg | Hótel Selfoss | 20:30 – 22:00 |
| 11. maí | Akureyri | Hótel KEA | 20:30 – 22:00 |
| 15. maí | Ísafjörður | Edinborgarhúsið | 12:30 – 14:00 |
| 17. maí | Akranes | Dalbraut 1 | 20:30 – 22:00 |
| 18. maí | Fjarðabyggð - Reyðarfjörður | 20:30 – 22:00 | |
| 19. maí | Hafnarfjörður | Hafnarborg | 20:30 – 22:00 |
| 20. maí | Reykjavík | Iðnó | 20:30 – 22:00 |