Vaxtasprotinn 2010
Það er mér sönn ánægja að vera með ykkur hér á þessum vormorgni. Þetta er gleðistund.
Umhverfið hér í Grasagarðinum er bæði uppörvandi og einkar viðeigandi þar sem hér eru vaxtarsprotarnir að taka við sér í orðsins fyllstu merkingu eftir veturinn vökvaðir.
Sama á við hjá þeim fyrirtækjum sem hafa verið tilnefnd sem viðtakendur Vaxtarsprotans 2010.
Vonandi á það við um sem allra flest sprotafyrirtæki.
Mitt verkefni sem ráðherra iðnaðar- og nýsköpunar er meðal annars að stuðla að því.
Í þeim tilgangi hafa bæði stjórnvöld og hagsmunaaðilar sett af stað umfangsmikla endurskoðun á stoðkerfi nýsköpunar, vinnubrögðum og stefnumörkun, en heildstæð atvinnustefna hefur aldrei verið mótuð.
Nýsköpun í atvinnulífinu er lykilatriði til að við höldum háu atvinnustigi og þjóðartekjum sem undirstöðu lífskjara, velferðar og menntunar til framtíðar.
Í bili er á brattann að sækja en við búum að góðum grundvelli. Verkefnið er að ná til baka þeirri skerðingu sem við höfum orðið fyrir og standast fyllilega alþjóðlega samkeppni.
Svo ég leyfi mér að nefna dæmi þá hafa verið sett ný lög sem er hvetja bæði fjárfesta til að leggja nýsköpunarfyrirtækjum lið og fyrirtækin sjálf til að bæta enn í rannsóknir og þróun.
Unnið er að svokallaðri „Sóknaráætlun, 20/20“, þar sem leitast er við að móta heildstæða stefnu fyrir framtíðina. Markmiðið er að kveikja eins konar leiðarljós eða viðmiðun fyrir allar aðgerðir stjórnvalda, sveitarstjórna og atvinnulífsins.
Til að móta stefnuna hefur verið leitað til grasrótarinnar með fundum út um allt land, þjóðfundur og landshlutafundir.
Fyrirmyndin að þessari vinnu er sóknaráætlun ESB, 20/20 enda er samhliða í gangi undirbúningur að aðildarviðræðum við ESB. Í þeirri vinnu er m.a verið að skoða stefnu, markmið og áætlanir ESB í nýsköpun og atvinnumálum og setja fram okkar áherslur í þessum málaflokkum.
Ljóst er þar er margt sem við getum haft til hliðsjónar í okkar endurskoðun og stefnumörkun í atvinnumálum.
Eitt af því sem við getum öll gert er að hvetja nýsköpunarfyrirtækin okkar til dáða. Til þess er meðal annars Vaxtarsprotinn.
Vaxtarsprotinn er viðurkenning sem veitt er á vegum Samtaka Iðnaðarins, Rannsóknarmiðstöðvar Íslands og Háskólans í Reykjavík. Tilgangurinn er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.
Mér hefur hlotnast sá heiður að tilkynna hver hlýtur nafnbótina Vaxtarsprotinn 2010. Valið var að vanda erfitt enda komu nokkrir mjög efnilegir sprotar til greina í ár.
En það er mér ánægja að útnefna Vaxtarsprota ársins 2010: Nox Medical.
Ég vil biðja fulltrúa Nox Medical að koma hingað og taka við verðlaunagripnum.
Auk þess fær fyrirtækið sérstakan verðlaunaskjöld til eignar.
Ég vil óska stjórnendum og starfmönnum innilega til hamingju með glæsilegan árangur. Eins og þið flest vitið var það einnig Nox Medical sem hlaut nýsköpunarverðlaunin í ár.
Fyrir þá sem ekki þekkja til Nox Medical vil ég fá að segja að fyrirtækinu tókst á aðeins þremur árum að koma á markað sinni fyrstu afurð, nýrri kynslóð af svefngreiningarlausnum. Þessi búnaður er byltingarkendd nýjung í svefnmælingum og nýtist meðal annars við rannsóknir og meðhöndlun svefntruflana bæði barna og fullorðinna.
Með nýjungum í þráðlausum tölvusamskiptum, gagnageymslum, skynjara- og rafeindatækni tókst að þróa búnað sem sameinar einfaldleika í notkun og þægindi sjúklings án þess að draga úr gæðum greininga eða gagna. Nú getur fólk mælt sig sjálft eina eða fleiri nætur sem eykur bæði áreiðanleika og dregur úr kostnaði við mælingar.
Þessi eiginleiki tækjanna frá Nox Medical hefur vakið mikla athygli og hann hefur meðal annars verið valinn af bandarískum fyrirtækjum sem að sérhæfa sig í fjarlæknisþjónustu þar sem að búnaðurinn er sendur í pósti til og frá sjúklingum.
Nox Medical nýtir sér stóra undirverktaka í framleiðslu og öfluga samstarfsaðila í sölu og dreifingu. Þetta gerir fyrirtækinu kleift að vaxa mjög hratt. Sala búnaðar á fyrsta söluári var umtalsverð umfram væntingar en vegna þessa viðskiptamódels var hægt að mæta þessari auknu eftirspurn að mestu.
Fyrirtækið vinnur nú að því að styðja betur við núverandi framleiðsluvörur með bættri framleiðslutækni og flutningsleiðum. Fyrirtækið leggur einnig mikla áherslu á frekari vöruþróun til þess að breikka vörulínu þess fyrir svefnrannsóknir. Meðal annars er unnið að þróun einnota öndunarskynjara sem að mun bæði virka með núverandi tækjabúnaði fyrirtækisins en einnig með öðrum svefngreiningarlaunsnum og ætlar félagið sér þannig að renna styrkari stoðum undir tekjusteymi þess.
Við getum öll verið sammála um að Nox Medical er vel að þessari nafnbót komið. Með svona vaxtarsprota og frumkvöðla á vaktinni getum við öll sofið rólegri í framtíðinni.
Svona vormorgnar innan um öflug fyrirtæki og frumkvöðla eru til þess fallnir að auka okkur öllum bjartsýni.
Ég vil í lokin óska ykkur öllum aftur til hamingju með árangurinn og þakka kærlega fyrir samveruna í dag.