Hvert stefnir?
Fundarstjóri, góðir gestir, - dear Mr Calder and Herr Schulte-Strathaus,
Í nóvember síðastliðnum stóð ég síðast í ræðustól hér á Hótel Loftleiðum. Ferðaþjónustan stóð í blóma.
Ferðamenn flykktust hingað. Náttúran var okkur vinveitt og veik staða krónunnar greininni huggun í kjölfar efnahagshrunsins.
Við okkur blasti besta ferðamannaár Íslandssögunnar.
Nú blasir því miður við nokkuð breytt mynd.
22% fækkun farþega til Íslands í apríl og ef fram heldur sem horfir munu svörtustu spár manna rætast.
Ég þykist vita að þegar þessi fundur var ákveðinn höfum við haft væntingar um að eldgosið í Eyjafjallajökli yrði um garð gengið eða að minnsta kosti í rénun svo við gætum í rólegheitum velt vöngum og dregið af því lærdóma eftir á.
En eldgosið er enn að trufla samgöngur og veikja þar með grundvöll þessarar mikilvægu atvinnugreinar.
Ef við lítum á heildarmyndina er samt aðeins einn þáttur sem kom vísindamönnum okkar og almannavarnarsérfræðingum á óvart:
Dreifing öskuskýs með óvenju fínum ögnum um alla Evrópu.
Þetta er jafnframt sá þáttur sem setti stærstan hluta af flugsamgöngum álfunnar úr skorðum og olli mestri röskun á ferðalögum fólks og efnahagslífi víða um heim.
Það verður viðfangsefni stjórnvalda, vísindamanna og stofnana næstu mánuði að draga lærdóma af þessari stöðu og við Íslendingar munum að sjálfsögðu taka fullan þátt í því starfi.
Við þurfum betri mælingar, vísindalegan grunn undir aðferðafræði við hættumat, markvissari viðbragðsáætlanir og mun ríkara alþjóðlegt samráð um þessi efni.
Þetta verður meðal annars til umræðu á fundi evrópskra flugmálayfirvalda sem haldinn verður á Íslandi í næsta mánuði.
Hér innanlands höfum við brugðist við vanda ferðaþjónstunnar eftir bestu getu.
Frá upphafi öskugoss í Eyjafjallajökli hefur samráðshópur stjórnvalda og ferðaþjónustu verið að störfum. Við höfum kallað hópinn Viðbragðsteymi ferðaþjónustunnar.
Á þeim vettvangi hefur stór hópur fólks hist eftir þörfum til þess að bera saman bækur sínar, skiptast á upplýsingum, hafa yfirsýn um ákvarðanir og setja í gang það sem nauðsynlegt hefur verið talið.
Í öllu þessu starfi hefur samstarf ferðaþjónustunnar við jarðvísindamenn og almannavarnir verið til fyrirmyndar.
Í upphafi horfðum við til þess með hvaða hætti við gætum sem best haldið utan ferðamenn sem hér voru fastir. Jafnframt setti hópurinn af stað vinnu við miðlun upplýsinga um raunverulegt ástand mála. Sá hópur er enn að störfum. Þá höfum við verið að vinna með hinar ýmsu sviðsmyndir og viðbrögð við þeim.
Viðbragðsteymið fór síðan í gær í ferð um Suðurland og eru þegar komin af stað vinna við að styðja við ferðaþjónustuaðila á því svæði sem eru að verða verst úti.
Hugmyndin um markaðsherferð á erlendum mörkuðum til að vinna gegn neikvæðum áhrifum eldgossins kviknaði einmitt í þessum viðbragðshópi.
Í viðbragðsteyminu höfum við því horft til aðgerða til lengri tíma, horft til aðgerða til skemmri tíma, horft út á við og horft inná við.
Nú er þetta markaðsátak að smella saman á undraskömmum tíma við óvenjulegar og í raun fordæmislausar aðstæður.
Ég er stolt af þessu átaki sem við munum hefja formlega eftir hádegi í dag.
Aldrei áður hafa stjórnvöld lagt svo mikið til eins markaðsátaks og líklega hefur svo stórt markaðsátak ekki áður verið gert að veruleika með gífurlegri vinnu og samstilltu átaki fjölda aðila.
Ég vil nota tækifærið og þakka gestgjöfunum hér í dag fyrir samstarfið á undanförnum vikum en að verða vitni að fumlausum vinnubrögðum við svo erfiðar aðstæður hefur gert ástandið svo miklu bærilegra.
Flugrekstaraðilar hér á landi hafa unnið þrekvirki við erfiðar aðstæður og fyrir það ber okkur að þakka.
Ég færi einnig Ferðamálastofu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Reykjavíkurborg, Iceland Express og Útflutningsráði fyrir að þetta sé að verða að veruleika svo fljótt sem raun ber vitni.
Mikilvægt er að við nýtum þetta átak til að snúa vörn í sókn og gera veikleika að styrkleika.
Kastljós heimsins hefur vissulega beinst að Íslandi, síbreytilegri náttúru landsins og þeirri orku sem hér er að finna.
Okkar verkefni er að beina athyglinni að því að einmitt þessir þættir gera Ísland svo eftirsóknarvert sem áfangastað. Við erum stolt af okkar óstýrlátu náttúruöflum þrátt fyrir allt.
Við þurfum að miðla þeim skilaboðum að á öllum helstu áfangastöðum ferðamanna á Íslandi gengur lífið sinn vanagang og gestir njóta bæði öryggis og gestrisni.
Hér er nútímalegt samfélag sem býður alla helstu afþreyingu og upplifanir og þrífst í nábýli við náttúruöflin í öllu sínu veldi.
Ég hef fulla trú á því að með sameiginlegu átaki takist okkur að yfirstíga þann vanda sem íslensk ferðaþjónusta stendur nú frammi fyrir.
Yfirskrift átaksins verður Inspired by Iceland. Þar er ætlunin að sýna Ísland eins og það er. Við verðum með nýjar myndir af náttúruöflunum, nýjar myndir af fólkinu, nýjar myndir af spennandi áfanga stöðum. Við munum nota vefmyndavélar til að sýna heiminum hvað hér er að gerast. Við munum nota samfélagsvefina. Og síðan er ætlunin að fá hvern einasta Íslending í stöðu sendiherra ferðaþjónustunnar í þjóðarátaki sem blásið verður til á næstunni. Þá verða Íslandsvinir um allan heim virkjaðir með.
Til þess þurfum við að beita allir þeirri hugkvæmni, nýsköpun, vandvirkni og gæðum sem við viljum að þessi mikilvæga útflutningsgrein okkar sé þekkt fyrir um heim allan.
Með þessum orðum set ég þennan morgunfund og vona að við eigum hér góða stund hvað sem líður spúandi eldfjallinu fyrir austan.