NOTE: This article is more than 5 years old.
11 júní 2010
/

Kynning á úthlutunum úr Tækniþróunarsjóði

 

Ágætu gestir :

Ég býð ykkur velkomin á þessa kynningu á úthlutunum Tækniþróunarsjóðs, sem er fyrri úthlutun ársins.

Eins og allir vafalaust vita er Tækniþróunarsjóður samkeppnissjóður á vegum iðnaðarráðuneytisins sem Rannís sér um samkvæmt samningi við ráðuneytið.

Í gegnum tíðina hafa margir tjáð sig um kosti og galla stuðningskerfis ríkisins fyrir nýsköpun og atvinnuþróun.

Þrátt fyrir að skoðanir hafi verið skiptar hafa allir þó getað sammælst um mikilvægi Tækniþróunarsjóðs.

Um starfsemi hans hefur ríkt einstök sátt enda reikna ég með að gildi hans fyrir nýsköpun atvinnulífsins og samkeppnisstöðu landsins sé öllum ljós.  

Það hefur verið mér mikið gleðiefni að heyra af þeim fjölmörgu verkefnum sem Tækniþróunarsjóður hefur komið að og hafa náð að verða að blómlegum fyrirtækjum sem skilað hafa eigendum sínum og þjóðfélaginu öllu margföldum ávinningi.

Þeir eru ekki ófáir frumkvöðlarnir sem hafa sagt mér að án stuðnings úr Tækniþróunarsjóði hefðu hugmyndir þeirra og nú fyrirtæki aldrei orðið að veruleika.

Umkvörtunarefni hafa fyrst og fremst snúið að því að ríkið skammti fjármagn of knappt í sjóðinn, sem er mjög skiljanlegt í ljósi þess að árangurslíkur umsókna er yfirleitt um 30%,  sem þýðir að aðeins um þriðjungur umsókna hafa fengið styrki. 

Í þessu sambandi er verst að sjá á bak áhugaverðum verkefnum sem skilin eru eftir í óvissu, en myndu mjög líklega getað skilað árangri fyrir samfélagið.  Mörg þeirra komast þó áfram af eigin rammleik og ber að fagna því.

Tækniþróunarsjóður er samkeppnissjóður. 

Flestir hafa getað sammælst um mikilvægi samkeppnisformsins og að sérmerking á fjármagni til einstakra málaflokka sé ekki líkleg til að skila hámarks árangri.  

Meginreglan um opna samkeppni leiðir til þess að nýjar hugmyndir falla ekki á óþarfa girðingum, en reynsla flestra þjóða er að bestu og frumlegustu lausnirnar koma yfirleitt úr ólíklegustu áttunum. 

Ég vil þó ekki líta fram hjá því að markáætlanir á afmörkuðum sviðum geta átt rétt á sér þegar huga þarf sérstaklega að einstökum sóknarmöguleikum.

Tækniþróunarsjóður hefur sennilega aldrei haft meiri þýðingu fyrir samfélagið en einmitt nú. 

Það er mikilvægt að á tímum efnahagslegrar endurskipulagningar og uppbyggingar atvinnulífsins hefur frumkvöðlakrafturinn risið til nýrra hæða eins og umsóknir í Tækniþróunarsjóð og fleira eru dæmi um.

Það er mikilvægt að hafa þetta í huga á tímum niðurskurðar á ríkisútgjöldum, því endurreisn efnahagslífsins mun ekki verða af sjálfu sér. 

Tækniþróunarsjóður hefur nú verið starfræktur frá árinu 2004 og er á sínu sjöunda starfsári.  Fyrsta árið hafði sjóðurinn 230 m.kr. til ráðstöfunar, hafði árið 2009 690 m.kr,  en hefur á þessu ári 720 m.kr., sem er þreföldun á ráðstöfunarfé sjóðsins.

Rétt er að halda því til haga að Tækniþróunarsjóður er eitt mikilvægasta framlag iðnaðarráðuneytisins til nýsköpunar atvinnulífsins.

Við höfum því barist fyrir tilvist hans og vexti á þessum síðustu og verstu tímum.

Sjóðurinn mun ekki skerðast á fjárlögum næsta árs, við finnum leiðir til að sækja fram

Kynna sjóðinn og þýðingu hans fyrir verðmætasköpun og atvinnusköpun.  Ég hef rekið mig á að of margir þekkja hann ekki nógu vel.

Ánægð með áherslur stjórnar í þeim efnum

Sýnilegri tækniþróunarsjóður mun skila okkur sterkari tækniþróunarsjóði.

Ég er sátt við að hafa geta varið hann gegn niðurskurði á þessum erfiðu tímum og vona að hann nái að vaxa og dafna í framtíðinni okkur öllum til heilla. Setjum okkur metnaðarfull markmið undirbyggð með sterkum rökum.

Að lokum vil ég óska öllum þeim frumkvöðlum sem fá úthlutun úr Tækniþróunarsjóði til hamingju og vona að þetta sé aðeins upphafið að farsælli vegferð ykkar, sem um leið er mikilvæg vegferð fyrir þjóðarbúið.

Í raun er ástæða til að óska öllum umsækjendum til hamingju því það skref að móta hugmynd sína og framtíðarsýn, viðskipta- og aðgerðaáætlun með þeim hætti sem þarf til að sækja um til Tækniþróunarsjóðs er í sjálfu sér ákveðinn árangur og lærdómsferli.

Þeir sem ekki fengu úthlutað nú gætu komist að síðar eða þá að aðrar dyr opnast.

Það er jú sameiginlegt verkefni okkar að tryggja að engar góðar og verðmætar hugmyndir læsist óvart úti.

Enn og aftur til hamingju með daginn.