NOTE: This article is more than 5 years old.
15 júní 2010
/

Vinnufundur verkefnisstjórnar og kynning merkis

 

Góðir gestir

Ánægjulegt að sjá svo marga saman á þessum vinnufundi sem markar um leið upphaf áætlunar stjórnvalda um orkuskipti í samgöngum.

Ég treysti því að allir þátttakendur séu fróðari um viðfangsefnið og möguleikana og að  nýskipuð verkefnisstjórn sé einnig vel nestuð af góðum hugmyndum og tillögum frá ykkur um næstu skref.

Þegar ég hóf undirbúning að þessu verkefni var leiðarljós mitt að leita að því sem sameinar alla þá sem vinna að því með einhverjum hætti að koma á orkuskiptum í samgöngum og auka hlut visthæfrar innlendrar orku á kostnað innflutts kolefnaeldsneytis.

Við þurfum að gera allt ykkar mikla starf sýnilegt, vekja athygli á þeirri verðmætasköpun sem því fylgir og leita saman að leiðum til að bæta starfsumhverfið og skilyrðin.

Markmiðið er almenn vitundarvakning og fá fleiri aðila til að leggja verkefninu lið og um leið að efla nýsköpun á þessu sviði

Ísland er kjörin vettvangur fyrir þróun og prófnum á nýjum lausnum bæði hvað varðar framleiðslu á visthæfri orku og tækni sem tengist farartækjum. 

Erlend fyrirtæki sjá tækifæri í samstarfi við íslenska aðila vegna reynslu þeirra á þessu sviði og einnig vegna þess að við höfum aðgang endurnýjanlegri orku.

Auk þess þurfum við í sameiningu að móta tillögur að raunhæfum aðgerðum sem hvetja til orkuskipta í samgöngum. Þar geta stjórnvöld gegnt mikilvægu forystuhlutverki en einnig sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki með mótun samgöngustefnu.

Hugsun okkar er ekki að velja lausnina ofan frá og miða svo allar aðgerðir við þá einu leið heldur frekar að skapa hagstæða umgjörð og hvata fyrir hinar ýmsu leiðir.

Að endingu verða það ekki stjórnvöld heldur tækniþróunin og markaðurinn sem ræður því hvaða lausnir lifa og ná fjöldaútbreiðslu.

Samkvæmt því sem hér hefur komið fram í dag verða ýmis konar fjöldaframleiddar lausnir í boði innan fárra ára.

Við þurfum að hefjast handa að alvöru og undirbúa okkur og vera tilbúin fyrir nýjar lausnir, bæði lausnir sem við tökum  þátt í að þróa og lausnir annars staðar frá.

Skrefin geta verið svo ótalmörg og legið víðar en við sjáum í fljótu bragði.

Þegar við stingum hreyfilhitara í samband við rafmagn til að minnka eldsneytisnotkun bíla á köldum dögum erum við að draga úr notkun kolefnaeldsneytis með visthæfri innlendri orku.

Sama gerum við með því að bjóða skipum upp á hafnarrafmagn í stað keyrslu ljósavéla eða jafnvel farin að veiða fiskinn í sjónum með annari tækni en að draga þung veiðarfæri á eftir veiðiskipinu. (ljóstækni sem NMI tekur þátt í að þróa)

Þannig má lengi hugsa sig áfram.

Ég bind miklar vonir við þetta starf og vænti þess að við sjáum fljótlega næstu skref sem hluta af aðgerðaáætlun til lengri tíma.

Eitt af því mikilvægasta sem við gerum er að mynda saman klasa um þetta verkefni.

Við lögðum því áherslu á að merki og heiti þessa verkefnis gæti verið til þess fallið að sameina sem flesta.

Merkið getur verið sameiningartákn og yfirlýsing um að viðkomandi merkisberi vinni að orkuskiptum í samgöngum.

En útfærslur af merkinu geta líka verið ákveðin viðurkenning sem felur í sér að viðkomandi merkisberi njóti einhverra þeirra hvata eða ívilnana sem hægt er að koma við til að flýta þróuninni.

Merkið sem ég kynni hér í dag er Græna Orkan – visthæf orka í samgöngum.

Merkið er hringur eða hjól sem er tákn þess sem endurnýjast.

Form hjólsins er þannig að það sameinar ýmsa mismunandi innlenda visthæfa orkukosti:

Vindmylluspaðana eða túrbínuhjólið fyrir raforkuna og blómið fyrir lífrænt eldsneyti á borð við metan eða lífdísel.

Þegar rýnt er í pílárana í forminu má líka sjá straumkast vatns eða iðu auk þess sem hver pílári hringsins er um leið gufubólstri og þannig tákn jarðvarmans.

Litirnir eru blár og grænn, alþjóðlegir litir umhverfisins. Hér gróandinn og hið tæra loft og vatn.

Ég vona að við eigum eftir að sjá sem flesta fylkja sér undir þessu merki, hvort sem það eru háskólar í rannsóknarstarfi, bílainnflytjendur, frumkvöðlar og uppfinningamenn, grúskarar í bílskúrum, olíufélög sem bjóða upp á fjölorkustöðvar eða sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki sem móta sér meðvitaða samgöngustefnu.

Í dag er líka opnaður vefur Grænu orkunnar á hinni lýsandi slóð graenaorkan.is.

Þar verða tenglar inn á síður þátttakenda í átakinu og í ýmsan fróðleik um orkuskipti.

Vefurinn verður síðar á ensku undir slóðinni ecoenergy.is og enska heitið er EcoEnergy for Transport.

Við byrjum ekki stórt en svo er það okkar allra að spinna við þennan vef og tengja rétt eins og verkefnið sjálft.

Að lokum vil ég leyfa mér að óska okkur til hamingju með daginn.

Núna skulum við njóta þess að ganga út í vorið og skoða saman þann merka bílaflota sem hér er úti.

Þar ætla ég að fá að afhjúpa formlega merki Grænu orkunnar á hinum nýja rafknúna ráðherrabíl iðnaðarráðuneytisins.

 

Með fyrirvara um orðalag þar sem farið var út fyrir efnið.