Íbúðalánasjóði verði heimilað að leigja íbúðir með ákvæði um kauprétt
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í dag að leggja fyrir Alþingi frumvarp Guðbjarts Hannessonar, félags- og tryggingamálaráðherra, til laga um breytingar á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998.
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem heimila Íbúðalánasjóði að bjóða til leigu íbúðir sem sjóðurinn hefur keypt á uppboði þannig að tilteknir húsaleigusamningar verði með kauprétti. Miðað er við að umsamin húsaleiga taki ávallt mið af markaðsleigu á viðkomandi stað. Ekki er gert ráð fyrir því að leigjanda sé skylt að nýta sér kauprétt heldur verði honum það í sjálfsvald sett. Nánari ákvæði um fyrirkomulag kaupleigu verður sett í reglugerð.
„Ég bind vonir við að þetta ákvæði muni auka verulega húsnæðisöryggi þeirra sem eru illa staddir fjárhagslega og að með þessu opnist fólki sem misst hefur húsnæði á uppboði möguleiki á því að eignast húsnæði á nýjan leik“ segir Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra.
Auk þessa er lagt til að Íbúðalánasjóði verði heimilt að gefa út óverðtryggða skuldabréfaflokka og eins er lagt til að heimildir sjóðsins til að veita lán til endurbóta á fjöleignarhúsum og til að bæta aðgengi að húsnæði fyrirtækja og stofnana verði víkkaðar. Gert er ráð fyrir að þessar breytingar hleypi auknu lífi í byggingaframkvæmdir og fjölgi störfum.
Með víðtækari heimildum Íbúðalánasjóðs til að fjármagna stórfelldar breytingar á fjölbýlishúsum, sem geta til dæmis falist í hönnun og uppsetningu á lyftum, er þess vænst að búsetufrelsi fólks aukist til muna. Búseta í heimahúsi geti þannig orðið raunverulegur valkostur við stofnanaþjónustu fyrir aldraða og fólk með hreyfihömlun.
„Ég bind vonir við að þetta ákvæði muni auka verulega húsnæðisöryggi þeirra sem eru illa staddir fjárhagslega og að með þessu opnist fólki sem misst hefur húsnæði á uppboði möguleiki á því að eignast húsnæði á nýjan leik“ segir Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra.