Formleg opnun Athafnaviku 2010
Kæru athafnasömu Íslendingar,
Ég vil byrja á því að þakka það góða boð að fá tækifæri til að ávarpa þessa opnunarhátíð alþjóðlegu athafnavikunnar á Íslandi.
Alþjóðleg athafnavika er stærsta hvatningarátak til nýsköpunar sem farið hefur af stað í heiminum en vikan fer fram samtímis í yfir 100 löndum.
Í ár er gert ráð fyrir að samtals verði haldnir um 40 þúsund fjölbreyttra viðburðir um allan heim.
Hér á landi hefur þátttaka verið afar góð og ég vil nota þetta tækifæri og óska Innovit innilega til hamingju með glæsilegan árangur með Athafnavikuna 2009 en þá voru skráðir 120 viðburðir og fékk Ísland fyrir það viðurkenningu á Global Entrepreneurship Congress sem haldin var í Dubai.
Kæra athafnafólk,
Einmitt þegar við þurftum mest á því að halda hefur atvinnulífið sýnt endurnýjarþrótt sinn og getu til verðmætasköpunar. Birtist okkur í mikilli uppsveiflu í hugverkaiðnaðinum. Fjöldi nýrra starfa og spennandi starfa hefur orðið til og við sjáum að enn er tækifæri til að bæta í.
Nýsköpun í atvinnulífinu er lykilatriði til að við höldum háu atvinnustigi og þjóðartekjum sem undirstöðu lífskjara, velferðar og menntunar til framtíðar.
Ég þreytist ekki á að segja að okkar stærstu virkjanakostir í nánustu framtíðar eru einmitt það afl sem býr í atvinnulífinu sjálfu, ykkar hugvit og hugmyndir. Hefðbundnir virkjanakostir eru takmarkaðir við allar aðstæður, en þessi kostur er ótakmarkaður við réttar aðstæður.
Stjórnvalda er að skapa aðstæðurnar og umgjöfðina og þá eru ykkur allir vegir færir.
Endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar eru rýmkaðar. Kerfið á að vera lifandi ekki staðnað svo það geti svarað þörfum á hverjkum tíma fyrir starfandi fyrirtæki stór og lítil og ný verkefni.
Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Ferðamálastofa, Byggðastofnun eru þjónar ykkar athafna.
Ein mikilvæg forsenda vaxtar og enn öflugri nýsköpunar í atvinnulífinu er að okkur takist að vinna hratt úr skuldamálum fyrirtækja.
Yfirskuldsett fyrirtæki eru ekki í góðri stöðu til að bæta við starfsfólki, fjárfesta í nýjum og bættum framleiðsluferlum eða leggja peninga í nýsköpun og þróun.
Þess vegna eru það afar mikilvæg tíðindi að frumkvæði stjórnvalda hefur leitt til þess að náðst hefur samkomulag við fjármálastofnanir og Samtök atvinnulífsins um sérstakt átak í að leysa úr skuldavanda sex þúsund lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Markmiðið er að uppstokkun á efnahag þessara fyrirtækja verði lokið fyrir 1. maí 2011.
Þetta átak er líklega ein stærsta og mikilvægasta aðgerðin sem hægt er að ráðast í á sviði atvinnumála.
En við vinnum jafnt að þétt að stuðning við nýsköpun og erum nú að endurskoða allt stoðkerfi atvinnulífsins til einföldunar og aukinnar skilvirkni og veigjanleika.
Flaggskip okkar í þeim efnum er Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem við í iðnaðarráðuneytinu erum stolt af.
Þegar ég smellti athafnateygjunni um úlnliðinn á Þorsteini Inga Sigfússyni forstjóra í fyrra brást hann fimlega við með því að demba sér í sérstakt „teygjustökk“ Nýsköpunarmiðstöðvar.
Stökkið fólst í að kalla saman hóp aðila tengdan starfsstöðvum Nýsköpunarmiðstöðvar um land allt og koma af stað 10 aðgerðum til að skapa atvinnu og verðmæti.
Núna hefur Nýsköpunarmiðstöð ákveðið að endurtaka leikinn og í anda nýsköpunar er búið að útfæra nýtt hugtak.
Í ár bjóða Þorsteinn Ingi og félagar upp í teygjutvist.
Öflugum einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum er boðið upp í tvist með Nýsköpunarmiðstöð til lengri tíma.
Um er að ræða aðild að fjölda langtímaverkefna auk þess sem Nýsköpunarmiðstöð stendur fyrir röð atburða tengdri athafnavikunni um land allt.
Verkefnin spanna allt frá rannsóknum á þotuhreyflum og umhverfisvænni steinsteypu yfir í áherslur um uppbyggingu ímyndar erlendis.
Á nýliðnu Norðurlandaráðsþingi var Íslandi falið að vera kyndilberi norrænnar samvinnu á sviði nýsköpunar. Markmiðið er að koma á fót norrænum nýsköpunarvettvangi sem mótar í sameiningu metnaðarfulla áætlun um nýsköpuna á sviði græns hagvaxtar og velferðar.
Markmiðið er að skilyrði til nýsköpunar á Norðurlöndunum verði meðal þess besta sem þekkist og að aukið og skilvirkara samstarf verði milli nýsköpunarkerfa allra landanna.
Nýsköpunarsamstarfið er eitt sex slíkra kyndilverkefna sem samkomulag hefur náðst um að ráðast í á næstu þremur árum.
Góðir gestir
Bæði þátttaka í fjölþjóðlegu nýsköpunarsamstarfi og atburðum á borð við alþjóðu athafnavikuna skiptir miklu máli.
Við verðum að bera okkur saman við bestu aðstæður í öðrum löndum með það að markmiði að búa komandi kynslóðum hér á landi ekki síðri aðstæður, atvinnu og tækifæri til sköpunar á öllum sviðum.
Ég hef orðið vör við það að í kjölfar hruns fjármálakerfisins er ýmsum uppsigað við að hugtök á borð við samkeppni og samkeppnishæfni því nú þurfum við fyrst og fremst aukna samvinnu og samkennd.
En ég kýs að skilja þessi hugtök á jákvæðan hátt.
Takist okkur að tryggja hér nýsköpun sem stendur undir góðum lífskjörum, spennandi og fjölbreyttum atvinnutækifærum, fyrsta flokks menntun, heilbrigðis- og velferðarkerfi, skapandi menningarstarfi og sátt milli uppbyggingar og náttúrugæða þá er Ísland samkeppnishæft um starfskrafta og hugvit komandi kynslóða.
Þangað vil ég stefna.
Í mínum huga er athafnavikan okkur öllum hvatning til að setja markið hátt. Ég vil þakka aðstandendum fyrir að beina jákvæðni og ljósi á tækifærin. Förum yfir hvað er hægt og hvað við viljum.
Gangi ykkur öllum sem best og megi þessi formlega athafnavika verða sú fyrsta í röð ótal samfelldra athafnavika á næstu árum.
Góðar athafnir !