Nafn og merki á nýju gæða- og umhverfiskerfi fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi

Nafnið
Dómnefnd var sammála um að nýtt gæða- og umhverfiskerfi fyrir íslenska ferðaþjónustu skyldi hljóta nafnið VAKI, vegna þess hversu lýsandi orðið er fyrir verkefnið í heild og tilgang þess. Merking hugtaksins er t.a.m. hvati, eitthvað sem örvar, en nýja kerfinu er einmitt ætlað að vaka yfir frammistöðu þeirra sem starfa í greininni og hvetja til fagmennsku innan ferðaþjónustunnar og gagnvart umhverfinu. VAKI heldur starfsfólkinu þannig vakandi, vekur áhuga á nýjum tækifærum og tryggir að allir geri ávallt sitt besta. Í stuttu máli mun VAKI vekja og viðhalda áhuga á gæðum í íslenskri ferðaþjónustu, jafnt meðal almennings, gestgjafanna og þeirra gesta sem hingað koma.
Efnt var til samkeppni um nafngiftina og bárust um 130 tillögur. Höfundur vinningstillögurnnar er Gunnar Svavarsson. Dregið var úr nöfnum þeirra sem sendu inn nafnið Vaki hjá sýslumanni.
Merkið
Dómnefnd komst að þeirri niðurstöðu að eftirminnilegasta og besta kennimarkið fyrir VAKA væri vindrellan, hönnuð af Þórhalli Kristjánssyni hjá Auglýsingastofunni Effekt á Akureyri. Alls bárust 14 tillögur í lokaðri samkeppni. Ástæður fyrir valinu eru margar. Nefna má að allir þekkja hlutinn sem vísað er í og hann vekur jákvæð hughrif og góða tilfinningu - jafnvel gleði og stolt, í ljósi hefðbundinnar notkunar í skrúðgöngum. Þá mynda útlínurnar stjörnu, sem vísar í viðurkenninguna sem í gæðakerfinu felst, en öll gistiaðstaða mun verða flokkuð með stjörnugjöf. Ennfremur er horft til umhverfisins; auðveldlega má sjá í merkinu tilvísun í holtasóley, þjóðarblóm Íslendinga, hvað varðar bæði lögun og lit.
Merkið gefur margvíslega útfærslumöguleika til birtingar og þykir í senn smekklegt og fallegt.
Fimm manna dómnefnd sá um valið og var hún að meirihluta skipuð fulltrúum frá Félagi íslenskra teiknara.
Þórhallur Kristjánsson, höfundur merkisins, gat ekki verið með okkur hér í dag en hér er höfundur nafnsins, Gunnar Svavarsson. Bið ég hann að koma upp og taka við viðurkenningu sinni.
