Brautskráning Brautargengiskvenna
Ágætu Brautargengiskonur
Velkomnar í vaxandi hóp kvenna sem lokið hafa námskeiðinu Brautargengi á undanförnum árum.
Frá og með deginum í dag tilheyrið þið stórum og glæsilegum hópi athafnakvenna sem allt frá árinu 1996 hefur unnið að því að koma viðskiptahugmyndum sínum í framkvæmd.
Fyrirrennarar ykkar velta milljörðum og skapa samtals þúsundir starfa.
Þessi störf urðu ekki til af sjálfu sér. Þau urðu til vegna hugmynda.
Öll afreksverk, öll góð verkefni og allur árangur byrja á hugmynd.
Þetta vitið þið sem nú standið með pálmann í höndunum, og fullmótaðar viðskiptahugmyndir í farteskinu eftir 15 vikna nám.
Þið eruð glæsilegir fulltrúar þessa góða verkefnis Nýsköpunarmiðstöðvarinnar.
Mat á árangri Brautargengis gefur bæði okkur og ekki síður ykkur tilefni til bjartsýni.
Meirihluti þáttakenda sem lokið hafa Brautargengi með eigin rekstur í dag sem er frábær árangur.
Ekki má gleyma að verkefnið hefur einnig reynst öllum þátttakendum efling í sínum störfum og framlagi til samfélagsins.
Meira en 90% þátttakenda eru ánægð með námskeiðið og munu mæla með því við vinkonur sínar.
Við þurfum sannarlega á ykkur að halda til endurreisnar samfélagsins. Við þurfum á kröftugum og bjartsýnum konum að halda.
Aðeins aukin verðmætasköpun í atvinnulífinu dugar til að mæta þeim efnahagssamdrætti sem við höfum glímt við frá haustinu 2008. Ykkar hugmyndir geta orðið og munu verða hluti af þeirri verðmætasköpun.
Þetta vitum við, enda sjáum við merki þess að nýsköpun er að skapa fjölda starfa og tækifæri til uppbyggingar.
Til að ýta enn frekar undir þessa þróun þurfum við stöðugt að rýna stoðkerfi atvinnulífsins og leita leiða til að gera betur.
Í samræmi við það hefur iðnaðarráðuneytið unnið að því undanfarna mánuði að endurmóta stoðkerfi atvinnulífsins.
Núverandi stoðkerfi hefur þjónað atvinnulífinu vel og er ætlunin með þessari vinnu að bæta kerfið enn frekar.
Meginmarkmiðin með nýju skipulagi stoðkerfisins verða þau að þróa sambærilegt skipulag stoðkerfisins um land allt og auka samþættingu kerfisins.
Nýja kerfið á einnig að tryggja að stoðkerfið þjóni öllum atvinnugreinum, auk þess sem sveigjanleiki verður aukinn með virkari forgangsröðun í samræmi við breytilegar þarfir og áherslur.
Stoðkerfið verður einfaldað og gagnsæi þess aukið fyrir notendur.
Náist þessi markið getum við bætt stoðkerfið enn frekar.
En það er ekki síður hlutverk stjórnvalda að tryggja framtíðarfyrirtækjum ykkar hagstætt og stöðugt rekstrarumhverfi svo þau fái vaxið og dafnað og skapað samfélaginu verðmæti.
Ég legg áherslu á að við verðum að búa við atvinnu- og efnahagslíf sem ekki er háð sífelldum sveiflum.
Mín skoðun er að til að ná því markmiði þurfum við umfram annað að virkja sjálfan mannauðinn.
Brautargengi gengur svo sannarlega út á virkja mannauðinn og þann kraft sem býr í konum.
Þetta farsæla og framúrskarandi verkefni hefur sannarlega veitt mörgum góðum hugmyndum og öflugum konum brautargengi.
Um leið og ég óska Nýsköpunarmiðstöð Íslands til hamingju með býð ég ykkur aftur hjartanlega velkomnar í hóp Brautargengiskvenna.
Ég óska ykkur til hamingju með áfangann og óska ykkur alls hins besta í framhaldinu.