NOTE: This article is more than 5 years old.
23 desember 2010
/

Hvatningarverðlaun í heilsuferðaþjónustu

 

Kæru félagar,

Ferðaþjónustan er eins og við öll vitum vaxandi grein og mikil vægi hennar í þjóðhagslegu tilliti er sífellt að koma betur í ljós með nákvæmari, hagfræðilegri nálgun.

Nýlega birti Hagstofan ferðþjónustureikninga fyrir árin 2000 – 2008. Þar kemur m.a. í ljós að heildarneysla ferðamanna innanlands árið 2008 var yfir 170 milljarðar og að greinin skapaði um 9.200 stöðugildi sem er 5.1% af störfum alls það árið.  Við sjáum vöxtinn í greininni víða, framboð af ferðum er sífellt að aukast og nýsköpun í afþreyingu er mikil. Ein af þeim greinum sem vex og dafnar vel er heilsuferðaþjónustan og þar tel ég eins og ég hef áður nefnt að möguleikar okkar Íslendinga séu mjög miklir bæði fyrir innlendan markað og ekki síður þá erlendu. En það var einmitt í því ljósi sem ég beitti mér fyrir stofnun og stuðningi við klasann Ísland of Health sem flest ykkar sem hér eru kannist við.

Til að auka enn frekar á áframhaldandi þróun og nýsköpun á sviði heilsuferðaþjónustu ákvað ég að veita tvenn verðlaun til fyrirtækja sem skara fram úr á þessu sviði og erum við hér komin saman í dag til að veita þessi verðlaun. Hvor verðlaun eru að upphæð ein milljón króna og eru þau veitt fyrir áhugaverða heilsuferðapakka sem ætlaðir eru erlendum ferðamönnum. Skilafrestur var til 3. desember og bárust 23 umsóknir. Margar af þessum umsóknum lýsa hugmyndaauðgi og ákveðinni nýsköpun en þyrftu í allnokkrum tilfellum betri útfærslu og meiri ígrundun. Það kemur ekki á óvart þegar eitthvað alveg nýtt er á ferðinni.

Til að eiga möguleika á verðlaunum þurfti að uppfylla sjö skilyrði:

1.  Þrír eða fleiri aðilar/fyrirtæki kæmu að heilsuferðinni.

2.  Ferðin skyldi ætluð erlendum vel skilgreindum markhópum.

3.  Nýnæmi og framtíðarmöguleikar væru skýrir.

4.  Heilsuferðin stæði amk. 3 sólarhringar og væri í boði utan háannatíma.

5.  Heilsuferðin félli að skilgreiningu á vellíðunar- eða heilsuferðaþjónustu.

6.  Tilgangur ferðarinnar væri að efla heilsu viðskiptavinar.

Þá skyldi ávinningurinn af ferðinni fyrir ferðamanninn skýrt skilgreindur.

Eftir vandlega yfirferð og hlutlæga einkunnagjöf á ofantöldum þáttum þáttum, varð niðurstaða dómnefndar einróma um að mæla með að annarsvegar:

Bláa lónið í samvinnu við Icelandair, Kynnisferðir og Hreyfingu fyrir verkefnið „Blue Lagoon Psoriasis meðferð – ný intensive meðferð“.

Bláa lónið í samvinnu við Icelandair, Kynnisferðir og Hreyfingu: „Blue Lagoon Psoriasis meðferð – ný intensive meðferð“.

Umsögn dómnefndar: Verkefnið er vel skilgreint þó svo að verkefnið sé ekki nýtt af nálinni nema að hluta til þá fær verkefnið eina hæstu einkunn skv. matsþáttum. Það hefur sýnt sig í áranna rás að psoriasis meðferð í Bláa Lóninu skilar verulegum árangri og er enn í stöðugri þróun og byggir auk þess á rannsóknum og reynslu fjölda einstaklinga. Hin nýja „intensive-meðferð“ miðar að því að stytta hefðbundna psoriasis meðferð um helming, eða í 1-2 vikur, en ná þó sama árangri. Er þetta í samræmi við óskir gesta erlendis frá sem sótt hafa hefðbundna meðferð. Nálgun meðferðarinnar er heildstæð og felur m.a. í sér ráðgjöf um mataræði, hreyfingu og boð um kynnisferðir. Verkefnið er sett fram sem hágæðaferð þar sem viðskiptavinir upplifi margt af því besta sem heilsulandið Ísland hefur upp á að bjóða.

Hin verðlaunin fá Hreyfistjórn efh. í samvinnu við Breiðu bökin ehf., Fjallamenn efh. og Icelandair Hótel Hamar fyrir verkefnið „Why not treat your backpain in spectacular surroundings“.  

Hreyfistjórn efh. í samvinnu við Breiðu bökin ehf. og Fjallamenn efh. og Icelandair Hótel Hamar: „Why not treat your backpain in spectacular surroundings“.

Umsögn dómnefndar: Verkefnið fær hæstu einkunn skv. matsþáttum. Í verkefninu er notuð þekkingaryfirfærsla og íslensk nýsköpun til að búa til áhugaverða og nýja afurð í ferðaþjónustu þar sem fólki er boðið upp á greiningu, meðferð og þjálfun við mjóbaksvandamálum. Talið er að slík vandamál herji á um 80% vesturlandabúa einhverntímann á lífsleiðinni og stór hluti þeirra endar með viðvarandi vandamál með tilheyrandi óþægindum.  Ferðin er þannig uppbyggð að gestirnir koma til með að gista á Hótel Hamri í þægilegu umhverfi þar sem greining, þjálfun og fræðsla fer fram undir handleiðslu sér hæfðra starfsmanna Hreyfistjórnunar ehf. og Breiðu baka ehf. Þá býðst getum að nýta sér fjölbreytta afþreyingu sem í boði er á svæðinu og munu Fjallamenn ehf. sjá um að skipuleggja þann þátt feðarinnar.

Ég vil biðja Grím Sæmundsen fyrir hönd Bláa lónsins og Einar Einarsson fyrir hönd Hreyfistjórnar að koma hingað og taka við verðlaununum.

Að lokum þakka ég dómnefndinni undir formennsku Elíasar Gíslasonar forstöðumanni hjá Ferðamálastofu fyrir góð störf og fyrirtækjunum þakka ég sérstaklega fyrir góða þátttöku í þessum leiðangri okkar sem viljum sjá heilsu og lífstílsferðamennsku sem hornsteina í uppbyggingu ferðaþjónustunnar hér á landi.

Gjörið svo vel og njótið heilsusamlegra veitinga hér í dag. Gleðileg jól öll saman og þakka ykkur fyrir.