Verðlaunahátíð iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík 2011.
Forseti Íslands, menntamálaráðherra, borgarstjóri nýsveinar, meistarar og ágætu iðnaðarmenn
Til hamingju með daginn
Nú, þegar ég stend hér sem iðnaðarráðherra vil ég beina máli mínu sérstaklega til þeirra nýsveina og iðnaðarmanna sem hér eru heiðraðir.
Íslenskt atvinnulíf framtíðarinnar þarf á ykkur að halda.
Jafnvel framsæknasta atvinnustefna og öflugasta nýsköpunarstarf megnar ekki að skila samfélaginu auknum verðmætum ef við höfum ekki nóg af fólki með verk- og tækniþekkingu til að vinna þau störf sem þörf er fyrir.
Það hafa dunið stór og erfið áföll yfir efnahagslífið – en við erum á réttri leið og rétt eins og sólin er tekin að hækka – þá er hin efnahagslega sól einnig tekin að rísa.
Og ykkar bíður sannarlega metnaðarfullt verkefni. Að taka þátt í því með okkur að endurreisa fjölbreytt og skapandi atvinnulíf - sem myndar grunninn undir gott og heiðarlegt samfélag sem við erum stolt af.
Öll stefnumótun í atvinnumálum miðar að því hér verði til fjölbreytt atvinnulíf sem skapar aukin verðmæti.
Það er skylda okkar stjórnmálamanna að byggja upp stoðkerfi nýsköpunar og hagstætt rekstrarumhverfi þannig að ný spennandi og vel launuð störf geti orðið til.
Og það er svo sannarlega margt sem gefur okkur tilefni til bjartsýni.
Forsendur hafa verið skapaðar fyrir uppbyggingu gagnaveraiðnaðar með jöfnun samkeppnisstöðu við keppinauta í Evrópu.
Við höfum unnið að eflingu Vaxtarsamninga um allt land innri uppbyggingu.
Hátækniiðnaðurinn stendur traustum fótum - og í síðustu viku var ég við afhendingu styrkja úr Tækniþróunarsjóði - og það var magnað að finna kraftinn í þeim geira, fjölbreyttur bakgrunnur.
Tölvuleikjabransinn er að sprengja allt utan af sér – þar vantar bara fleira tæknimenntað fólk í fjölbreytt störf.
Við höfum sett rammalöggjöf um ívilnanir vegna nýfjárfestinga og tveir samningar hafa þegar verið gerðir á grundvelli þeirra; vegna Aflþynnuverksmiðju við Eyjafjörð og kísilmálmverksmiðju í Þorlákshöfn.
Samningur um aukna afkastagetu álversins í Straumsvík var undirritaður. Það er fjárfesting upp á tæpa 60 milljarða og 620 ársverk á byggingartíma.
Landsvirkjun að hefja framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun sem er fjárfesting upp á um 26 milljarða króna og sex til sjöhundruð ársverk á byggingartíma.
Sett voru lög um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki.
Með Framkvæmdasjóði ferðamannastaða er ætlunin að lyfta grettistaki í allri aðstöðu við helstu ferðamannastaði.
Á vegum iðnaðarráðuneytisins er þegar búið að kynna skýrslu um einföldun og eflingu alls stoðkerfis atvinnulífsins. Þar er áherslan lögð á þekkingarsetur og samstarf heimamanna á hverju svæði.
Við höfum nýlokið þátttöku í kortlagningu skapandi greina sem dró fram í dagsljósið hratt vaxandi atvinnugrein.
Unnið er að fyrstu hönnunarstefnunni fyrir Ísland það skapar tækifæri fyrir listiðnaðinn.
Þá hefur Fjárfestingarstofa og iðnaðarráðuneyti látið gera úttekt á stefnu og starfi vegna erlendra fjárfestinga og unnið er að fyrstu heildstæðu stefnunni um erlendar fjárfestingar.
Loks hefur verið ráðist í sértækar aðgerðir á borð við átakið Allir vinna sem skilað hefur verkefnum á sviði viðhalds og framkvæmda um land allt.
Að lokinni allri þessari upptalningu – og þegar ég horfi yfir þennan glæsilegan hóp nýsveina, þá er ekki annað hægt en að vera bjartsýn á framtíðina
Íslenskt atvinnulíf þarf svo sannarlega á ykkur að halda.
Ég óska ykkur – og okkur öllum – til hamingju með daginn!