Vaxtasprotinn 2011
Ágætu samkomugestir,
Það er mér sönn ánægja að vera með ykkur hér á þessum ljúfa og fallega vormorgni. Fyrir mér er Vaxtasprotinn vorboðinn ljúfi - sem ber með sér loforð um hækkandi sól og betri tíð.
Umhverfið hér í Grasagarðinum er bæði uppörvandi og einkar viðeigandi þar sem hér eru vaxtarsprotarnir að taka við sér í orðsins fyllstu merkingu.
Nýsköpun og öflugt frumkvöðlastarf eru forsenda þess að við getum byggt hér upp sterkt, kraftmikið og gott samfélag. Endurnýjunarkrafa nútímans er einfaldlega svo sterk að samfélög sem ekki taka nýsköpun og frumkvöðlastarf alvarlega eru dæmd til að dragast aftur úr í samanburði þjóðanna.
Það er því mikilsvert að við styðjum vel við nýsköpunarfyrirtækin okkar og hvetjum þau til dáða. Til þess er meðal annars Vaxtarsprotinn.
Það eru Samtök Iðnaðarins, Rannsóknarmiðstöð Íslands og Háskólans í Reykjavík sem standa að baki Vaxtarsprotanum – og eiga þau þakkir skildar.
Mér hefur hlotnast sá heiður að tilkynna hver hlýtur nafnbótina Vaxtarsprotinn 2011. Valið var að vanda erfitt enda komu nokkrir glæsilegir sprotar til greina í ár.
En það er mér ánægja að útnefna Vaxtarsprota ársins 2011: Handpoint ehf.
Ég vil biðja fulltrúa Handpoint að koma hingað og taka við verðlaunagripnum.
Auk þess fær fyrirtækið sérstakan verðlaunaskjöld til eignar.
Ég vil óska stjórnendum og starfmönnum innilega til hamingju með glæsilegan árangur.
Snjöll hugmynd, framúrskarandi útfærsla og kraftmikil markaðssetning er lykillinn að velgengni Handpoint - en fyrirtækið meira en fjórfaldaði veltu sína milli áranna 2009 og 2010 - úr tæpum 67 m.kr í um 347 m.kr.
Þegar horft er til þeirra breytinga sem orðið hafa og eru að verða í smásöluverslun þá er krafan um hagræðingu og afköst sífellt að verða háværari. Breytingum fylgja tækifæri – og þessi tækifæri hafa þau hjá Handpoint sannarlega nýtt sér.
Handpoint var stofnað árið 1999 af þremur skólabræðrum í verkfræðideild HÍ, þeim Davíð Guðjónssyni, Magnúsi Þór Torfasyni og Þórði Heiðari Þórarinssyni í kringum nýja handtölvutækni sem þá kom á markaðinn (Palm Pilot). Davíð og Þórður stjórna fyrirtækinu í dag en Magnús starfar sem aðstoðarprófessor við viðskiptadeild Harvard háskóla í Bandaríkjunum.
Í dag sérhæfir fyrirtækið sig í greiðslulausnum fyrir handtölvur og snjallsíma auk afgreiðslukassa og internetsins. Helstu viðskiptavinir fyrirtækisins eru verslunarkeðjur, flugfélög og bankastofnanir, t.a.m. British Airways, Ryanair, EasyJet, Icelandair, Adidas og Greiðsluveitan.
Miklar breytingar hafa orðið á greiðslukortamarkaði síðustu ár eins og Íslendingar hafa fundið fyrir og séð erlendis þar sem undirskriftir á greiðslukvittanir hafa vikið fyrir PIN innslætti en brátt mun sú tækni hefja innreið sína á Íslandi. Þessar breytingar skapa tækifæri í lausnaframboði fyrir verslanir og þjónustuaðila sem Handpoint hefur einbeitt sér að.
Starfsmenn Handpoint eru 25 og er fyrirtækið með skrifstofur í Kópavoginum og í Kambryggjuskíri á Englandi.
Það er hins vegar umhugsunarvert fyrir okkur sem samfélag að vöxtur fyrirtækisins hefur að hluta til orðið í Englandi vegna þess að það vantar sárlega fleiri hugbúnaðarsérfræðinga hér á Íslandi. Þetta eru skilaboð sem við verðum að taka alvarlega.
Við getum öll verið sammála um að Handpoint er sannarlega vel að þessari nafnbót komið. Það eru öflug og skapandi fyrirtæki á borð við Handpoint sem munu greiða leið okkar út úr þeim tímabundnu efnahagsþrengingum sem á okkur herja.
Vormorgnar eins og þessi - innan um öflug fyrirtæki og frumkvöðla eru til þess fallnir að auka okkur öllum bjartsýni.
Ég vil í lokin óska ykkur öllum aftur til hamingju með árangurinn og þakka kærlega fyrir samveruna í dag.

Á myndinni má sjá Kristján Skarphéðinsson afhenda Vaxtasprotann 2011.