Útskrift Iðnskólans í Hafnarfirði
Skólameistari, glæsilegi útskriftarhópur
Þó að það sé kalt úti og vorið láti bíða eftir sér – þá er það morgunljóst að sumarið er rétt handan við hornið. Að þessu leyti svipar veðurfarinu til efnahagsástandsins. Hinn efnahagslegi vetur er liðinn – og sannarlega var hann bæði kaldur og langur. En þess sjást skýr merki að sólin er tekin að hækka á lofti. Og þó að vorhret gangi nú yfir - þá styttir öll él upp um síðir.
Ég er svo heppin að vera ráðherra ferðamála, orkumála, nýsköpunar og iðnaðar, jákvæðu greinanna í ráðuneyti tækifæranna. Ég er sem sagt í forsvari fyrir þær greinar sem sóknin til betri lífskjara á Íslandi byggir á. Og sú sókn er ekki byggð á sandi.
Hrein og endurnýjanleg orka, tært vatn í miklum mæli og óspillt náttúra – þetta eru þær náttúruauðlindir sem Ísland er svo ríkulega blessað af. Og þetta eru um leið þær náttúruauðlindir sem heimsbyggðina vantar svo sárlega.
Við Íslendingar höfum allar forsendur til að koma á fót innan ekki langs tíma, auðlindasjóði – sambærilegan olíusjóði Norðmanna. Forstjóri Landsvirkjunnar nefndi töluna 100 milljarða sem þessi sjóður gæti skilað árlega í sameiginlega sjóði landsmanna eftir góðan áratug eða svo. Og það sem við höfum fram yfir norska olíusjóðinn er að olían er takmörkuð auðlind sem gengur að lokum til þurrðar. En orkan okkar er endurnýjanleg og getur malað okkur gull um langa framtíð.
Stór fjárfestingarverkefni upp á 100 milljarða eru komin af stað ... og í pípunum eru fleiri stórverkefni sem munu hafa gríðarlega þýðingu fyrir efnahagslífið.
Ferðaþjónustan blómstrar og er orðin ein af hinum þremur stóru gjaldeyrisskapandi atvinnugreinum þjóðarinnar. Og á þeim vettvangi er verið að undirbúa stórsókn til að efla ferðamennsku utan hins hefðbundna ferðamannatíma. Þar með fjölgar störfum á öllum sviðum, hönnunar og í byggingagreinum auk uppbyggingar verslunar og þjónustu.
Og þá vil ég minnast á mikilvægi skapandi greina en þar eru gríðarlegir vaxtarmöguleikar. Þar hafa skapast fjölbreytt störf.
Öll stefnumótun í atvinnumálum miðar að því hér verði til fjölbreytt atvinnulíf sem skapar aukin verðmæti. En allt byggir það á að við höfum gott mannaval – einstaklinga með fjölbreytta menntun og þekkingu til að vinna þau fjölbreyttu störf sem þörf á. Og sannarlega er þörf á sterkum einstaklingum með menntun í handverki , listum og iðnaði – og ekki er það verra að það sé útskrifað frá Iðnskólanum í Hafnarfirði!
Íslenskt atvinnulíf þarf svo sannarlega á kröftum ykkar að halda.
Ykkar bíður metnaðarfullt verkefni. Að taka þátt í því með okkur að styrkja og efla fjölbreytt og kröftugt atvinnulíf - sem myndar grunninn undir gott og heiðarlegt samfélag sem við erum stolt af. Við þurfum fleiri iðn- og tæknimenntaða talsmenn og lifandi fyrirmyndir, því tækifærin eru mörg til starfa og framhaldsmenntunar.
Þegar ég horfi yfir þennan glæsilegan hóp útskriftarnema frá Iðnskólanum í Hafnarfirði, þá er ekki annað hægt en að vera bjartsýn á framtíðina. Ég hlakka til að hitta ykkur fyrir í framtíðinni.
Ég óska ykkur – og íslensku samfélagi – til hamingju með daginn!