NOTE: This article is more than 5 years old.
03 júní 2011
/

Fyrsta áætlunarflug Delta milli NY og Keflavíkur


John S. Magnusson, flugstjóri og Katrín Júlíusdóttir, ferðamálaráðherra.
John S. Magnusson, flugstjóri og Katrín Júlíusdóttir, ferðamálaráðherra.

Delta Air Lines hóf áætlunarflug milli New York og Keflavíkur á uppstigningardag. Vestur-Íslendingurinn John S. Magnusson var flugstjóri í fyrsta fluginu og lenti skömmu á undan áætlun enda fékk hann góðan meðbyr á leiðinni. Fjölmenni tók á móti farþegum og áhöfn þegar vélin lenti á Keflavíkurflugvelli og hélt Katrín Júlíusdóttir, ferðamálaráðherra stutt ávarp við það tilefni.