NOTE: This article is more than 5 years old.
06 júní 2011
/
Nú fer að hitna undir Þingeyingum ... miklar framkvæmdir vegna undirbúnings virkjunar jarðgufu í sumar

Í sumar verður mikið um að vera á Norðausturlandi á háhitasvæðunum í Bjarnarflagi og á Þeistareykjum. Landsvirkjun og Þeistareykir ehf. munu standa fyrir viðamiklum rannsóknum til að fá fyllri upplýsingar um afkastagetu jarðhitasvæðanna og eru ætlaðir tveir milljarðar til framkvæmdanna í sumar.
Þessi kraftur í rannsóknum er í beinu samhengi við mikinn áhuga hugsanlegra orkukaupenda en eins og fram hefur komið á Landsvirkjun í viðræðum við átta til tíu álitlega aðila. Þá hafa ríkisstjórnin og fulltrúar fjögurra sveitarfélaga á Norðausturlandi undirritað viljayfirlýsingu þar sem lögð er áhersla á að jarðvarminn á svæðinu sé nýttur til umfangsmikillar atvinnuuppbyggingar og til að efla byggð á svæðinu.