Útskrift Brautargengiskvenna
Það er einkar skemmtilegt - og viðeigandi - að þessa útskrift úr Brautargengisnámskeiðinu skuli vera haldin deginum áður en sjálfur Þjóðahátíðardagurinn gengur í garð. Sjálfstæðisbarátta þjóðarinnar var bæði löng og ströng og þó að henni hafi formlega lokið 17. júní 1944 – þá verðum við á öllum tímum að halda vöku okkar og standa vörð um þau gildi sem sjálfstæðisbaráttan var grundvölluð á. Og jafnframt höfum við verið rækilega minnt á það á undanförnum misserum að efnahagslegt sjálfstæði þjóða er ekki náttúrulögmál. Það er ekki svo ýkja langt síðan að menn töluðu af alvöru um hættuna á þjóðargjaldþroti – og þrátt fyrir að okkur Íslendingum hafi auðnast að snúa þröngri stöðu í sókn þá er skuldastaða nokkurra ríkja sunnar í álfunni slík að hún gefur ekki tilefni til bjartsýni.
Hver er sinnar gæfu smiður á vettvangi þjóðanna. Og við á Íslandi verðum með ráðum og dáð að styrkja og efla efnahagslífið. Nýta auðlindir okkar með skynsamlegum hætti. Búa til gott og hvetjandi umhverfi fyrir öflugt atvinnulíf og þar með að ýta undir nýsköpun og grósku frumkvöðla.
Það er af þessari ástæðu sem ég gleðst alltaf jafnmikið við útskrift Brautargengiskvenna – og þær eru orðnar allnokkrar.
Svo notað sé tungutak fiskifræðinga – þá er það óendanlega mikilvægt fyrir íslenskt samfélag að nýliðun í hópi frumkvöðla sé góð og mér sýnist – og skilst – að þessi 2011 árgangur sé einstaklega sterkur. Í dag útskrifast 900-asta Brautargengiskonan frá árinu 1996 - og reyndar fimm betur! Í nýlegri könnun Félagsvísindastofnunar kemur í ljós að þrjár af hverjum fjórum konum sem útskrifast úr Brautargengi láta drauminn – og viðskiptaáætlunina – rætast. Þetta þýðir að á þeim fimmtán árum sem liðin eru frá því fyrsta Brautargengisnámskeiðið var haldið hafa u.þ.b. 675 konur farið í eigin rekstur. Og þegar við setjum þetta í samhengi hlutanna þá skapa þessi fyrirtæki þúsundir starfa og veltan nemur ótöldum milljörðum. Þetta er vitanlega ekkert minna en frábær árangur!
Sem ráðherra orkumála eru á borði mínu drög að Rammaáætlun en þar eru tilgreindir allir virkjunarkostir fyrir vatn og jarðhita – og lagt mat á þá. Þessar náttúruauðlindir okkar eru vitanlega ómetanlegar fyrir þjóðfélagið.
En sem ráðherra nýsköpunarmála er ég einnig með á borði mínu 319 þúsund aðra virkjunarkosti sem búa yfir langtum meira afli en allar vatns- og jarðhitavirkjanirnar samanlagt og það er auðvitað virkjun mannauðsins. Brautargengisnámskeiðin eru lýsandi dæmi um aflið sem myndast þegar beisluð er hugmyndaauðgi og sköpunarkraftur öflugra einstaklinga til uppbyggingar í atvinnulífinu – samfélaginu öllu til heilla.
Ég óska ykkur til hamingju með áfangann. Og ég hlakka til að fylgjast með sigrum ykkar í framtíðinni.
Besta viðskiptaáætlun starfandi fyrirtækis:
Hadda Björk Gísladóttir fyrir fyrirtækið Iceland photo tours ehf. Fyrirtækið býður upp á ferðir fyrir erlenda áhugaljósmyndara, undir yfirskriftinni "Capture nature". Hadda Björk vann raunhæfa, fagmannlega og vel útfærða áætlun. Fyrirtækið er byggt á samvinnu Höddu og eiginmanns hennar, Hauks Snorrasonar. Það er þegar komið í rekstur og lofar mjög góðu.
(sjá: http://phototours.is/)
Besta viðskiptaáætlun nýliða:
Árný Ingvarsdóttir, fyrir fyriritæki með vinnuheitið Sálartetrið, sem verður ráðgjafa- og útgáfufyrirtæki tengt sálfræði. Árný hefur unnið frábæra stefnumótun og gerði henni skil með sérstökum glæsibrag í fjárfestakynningu. Útgangspunktur fyrirtækisins er jákvæð nálgun í sálfræðiþjónustu; að hvetja fólk til að gera gott betra, stefna að velsæld, fjárfesta í góðri líðan sinni og barna sinna.