NOTE: This article is more than 5 years old.
21 ágúst 2011
/

Forsætisráðherra sækir minningarathöfn í Osló

Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir mun í dag sækja minningarathöfn sem haldin verður í Osló um þá sem létu lífið í Útey og við stjórnarráðsbyggingarnar í Osló, föstudaginn 22. júlí síðastliðinn. Norsk stjórnvöld boða til minningarathafnarinnar og hana munu meðal annarra sækja þjóðarleiðtogar og forystumenn ríkisstjórna allra Norðurlandanna.