NOTE: This article is more than 5 years old.
25 ágúst 2011
/

Ráðstefna Grænu orkunnar

Ágætu ráðstefnugestir.

Ef 20 öldin var öld olíunnar - þá er tuttugasta og fyrsta öldin öld endurnýjanlegra orkugjafa. Í þessu felast gríðarleg tækifæri fyrir okkur Íslendinga. En það er ekki nóg að vita af tækifærunum  ...  við þurfum að grípa þau og hagnýta.

Í almennri raforkuframleiðslu og húshitun er hlutur endurnýjanlegrar orku nær 100%. Við þurfum hins vegar að gera miklu betur þegar kemur að endurnýjanlegri orku fyrir bifreiðar og önnur samgöngutæki - og í orkuskiptaáætlun höfum við sett okkur metnaðarfull markmið þar um. Á þeirri vegferð gegnir samráðsvettvangurinn Græna Orkan lykilhlutverki. Því við þurfum að ná landi með einni gátt inn í stjórnkerfið og fá stuðning, því verkefnið er víðfermt.

Í upphafi var stjórn Grænu Orkunnar eingöngu skipuð fulltrúum frá hinu opinbera og meðal hennar fyrstu verka var að vinna með ráðuneytinu að gerð þingsályktunartillögu sem var samþykkt einróma á Alþingi sl. vor. Ríkisvaldið er hvorki upphaf né endir alls og því var ákveðið að víkka út vettvang Grænu Orkunar og inn í verkefnastjórnina voru fengnir fulltrúar frá einkageiranum. Stjórn Grænu Orkunar er í dag skipuð fulltrúum frá iðnaðar-, umhverfis-, fjármála- og innanríkisráðuneytunum. Frá einkageiranum eru fulltrúar frá Samtökum verslunar og þjónustu , Samorku, Samtökum iðnaðarins, Félagi íslenskra bifreiðareigenda, Sambandi sveitarfélaga, og  Bílgreinarsambandinu en fulltrúi þess og iðnaðarráðuneytisins er jafnframt formaður verkefnisins - Sverrir Viðar Hauksson.   

Með tilkomu Grænu Orkunnar er því komin viðmælandi og samráðsvettvangur sem hagsmunaðilar innan orkuskiptaklasans geta haft milliliðalaus samskipti við í stað þess að fara á marga staði innan stjórnkerfisins.

Nú í vetur munu orkuskiptin vera eitt af forgangsmálum iðnaðarráðuneytisins. Við erum nú í iðnaðarráðuneytinu í samvinnu við fjármálaráðuneytið að vinna að skattalegum breytingum til að liðka enn frekar fyrir innkomu bifreiða sem ganga fyrir endurnýjanlegum orkugjöfum.  Mikilvægt er að öryggissjónarmiða sé gætt og engin afsláttur gefin af þeim. Eitt slys vegna óvandaðra vinnubragða þegar klasinn er enn að slíta barnsskónum getur haft mjög alvarlegar afleiðingar varðandi trúverðugleika og traust hans til margra ára. Því er mikilvægt að regluverkið og rétt þjálfað starfsfólk þegar bifreiðar sem ganga fyrir einhverju öðru en bensín eða díselolíu, verða fluttar inn í meiri mæli en nú er gert. 

Lifandi vettvangur sem er hvergi bundinn niður getur þróast á ýmsa vegu.  Markmiðið er aðalatriðið og þarf að raðast á hverjum tíma miðað við þróun og stig veerkefnisins. 

Eins þarf hið opinbera að marka sér stefnu varðandi innkaup á visthæfum bifreiðum og setja sér raunhæf markmið hvað það varðar.  Að innan ákveðinna ára verði ríkið komi með ákveðið hlutfall bifreiða í sína eigu sem gangi fyrir endurnýjanlegum orkugjöfum.  

Það er mikilvægt að sveitarfélög og einkafyrirtæki komi að þessu verkefni með myndarlegum hætti. Sveitarfélögin munu spila stórt hlutverk í orkuskiptunum ekki síður en ríkisvaldið. Sveitarfélög geta skilyrt lóðir undir nýjar eldsneytisstöðvar sem fjölorkustöðvar þar sem til dæmis verður hægt að kaupa lífdísel, hlaða rafmagnsbíla og fylla metangas á bílinn. Sveitarfélög geta skipulagt umferðamannvirki með þeim hætti að ökutæki sem ganga fyrir visthæfum orkugjöfum fái ókeypis eða betri bílastæði og forgang á akreinum. Byggingareglugerðir sveitarfélaga gegna einnig mikilvægu hlutverki þar sem rafmagnshleðslur utandyra ættu að verða eitt af skilyrðunum í rafmagnsmálum við nýbyggingar sem dæmi. Eins ættu sveitarfélög að marka sér skýra stefnu varðandi innkaup á visthæfum bifreiðum. Ef sveitarfélögum ríki, menntastofnunum, einkafyrirtækjum og frumkvöðlum ber sú gæfa að ganga í takt getum við sameiginlega tekið fyrstu skrefin í þeirri leið að á Íslandi verði árið 2020 yfir 10% allra bifreiða knúin af endurnýjanlegum orkugjöfum.

Ég vil því nota þetta tækifæri hér til að hvetja sveitarfélög á Austurlandi og um allt land til að ganga til liðs við Grænu Orkuna. Það eru spennandi tímar framundan og sameinuð getum við unnið stóra sigra.