NOTE: This article is more than 5 years old.
16 mars 2012
/

Auglýsing um úthlutun aflaheimilda til áframeldis á þorski á fiskveiðiárinu 2012/2013.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra auglýsir eftir umsóknum um úthlutun aflaheimilda til áframeldis á þorski, sbr. reglugerð nr. 736/2009, um úthlutun aflaheimilda í þorski vegna tilrauna við föngun fisks til áframeldis og framkvæmd þess.

Umsóknarfrestur er til laugardagsins 31. mars 2012.

Umsóknum skal skila til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík og einnig skal senda umsóknir með rafrænum hætti á netfangið [email protected].

Umsóknir skulu merktar sem “Þorskeldiskvóti”.