NOTE: This article is more than 5 years old.
11 september 2012
/

Auglýsing til bæjar- og sveitarstjórna um úthlutun byggðakvóta fiskveiðiársins 2012/2013.

Með auglýsingu þessari vill ráðuneytið gefa bæjar- og sveitarstjórnum kost á að sækja um byggðakvóta, fyrir fiskveiðiárið 2012/2013, á grundvelli 10. gr. laga nr. 116/2006, með síðari breytingum. Bæjar-/sveitarstjórnir eru umsóknaraðilar fyrir byggðarlögin innan sveitarstjórnar­umdæmanna og annast þær öll samskipti við ráðuneytið, sem nauðsynleg eru vegna úthlutunarinnar.

Umsóknarfrestur um byggðakvóta fiskveiðiársins 2012/2013 er til 28. september 2012. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina.

Til greina við úthlutun byggðakvóta koma:

  1. Minni byggðarlög (viðmiðun er 2.000 íbúar þann 1. desember 2011), sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og sem háð eru veiðum og vinnslu á botnfiski. Skal sveitarstjórn gera ráðuneytinu ítarlega grein fyrir vanda byggðarlagsins sem talið er að rekja megi til samdráttar í sjávarútvegi á síðustu árum og fyrir þýðingu veiða og vinnslu botnfisks fyrir það byggðarlag.
  2. Byggðarlög sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í þeim. Sveitarstjórnir skulu leggja fram gögn, sem sýna fram á að í tilteknu byggðarlagi hafi óvænt skerðing heildaraflaheimilda fiskiskipa sem gerð eru þaðan út og landað hafa þar afla, hafi haft veruleg neikvæð áhrif á atvinnuástand í viðkomandi byggðarlagi.

Að fengnum umsóknum sveitarfélaga tekur ráðuneytið ákvörðun um hversu mikill byggðakvóti kemur í hlut einstakra byggðarlaga og tilkynnir bæjar-/sveitarstjórnum niðurstöðuna.  

Ráðuneytið hefur gefið út reglugerð um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2012/2013, nr. 629, 13. júlí 2012 og  reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2012/2013, nr. 628, 13. júlí 2012 og eru bæjar- og sveitarstjórnarmenn hvattir til að kynna sér innihald þeirra.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.