NOTE: This article is more than 5 years old.
19 október 2012
/

Umsóknir um styrki á safnliðum ráðuneyta samkvæmt frumvarpi til fjárlaga 2013

Umsóknarfrestur um styrki á safnliðum ráðuneyta er til miðnættis 20. nóvember 2012. Sótt er um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins


mennta- og menningarmálaráðuneytið
mennta- og menningarmálaráðuneytið

Umsóknarfrestur er til miðnættis 20. nóvember 2012


Á fjárlögum ársins 2012 var fyrirkomulagi við úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga breytt hvað varðar aðkomu fjárlaganefndar Alþingis.  Ákvörðun um framlag til einstakra málaflokka fer þó eftir samþykki Alþingis í fjárlögum 2013.
Ráðuneytin munu einungis úthluta styrkjum til verkefna sem falla undir málefnasvið þeirra að svo miklu leyti sem þau falla ekki undir lögbundna sjóði eða samninga, svo sem menningarsamninga eða vaxtarsamninga. Því er mikilvægt að umsækjendur kynni sér vel hvaða ráðuneyti ber ábyrgð á þeim málaflokki sem verkefni umsækjanda um styrk fellur undir.  Verkefni eru einungis styrkhæf í einu ráðuneyti og áskilja ráðuneyti sér rétt til að færa umsóknir á milli ráðuneyta falli verkefni betur að málaflokki í öðru ráðuneyti.
Mat á umsóknum.
Starfshópur metur styrkhæfi umsókna og gildi þeirra fyrir verkefnasvið ráðuneytis almennt. Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum eftir því sem við á:
a) gildi og mikilvægi verkefnis fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks,
b) gildi og mikilvægi fyrir kynningu og markaðssetningu viðkomandi málaflokks,
c) að umsækjanda takist að ná þeim markmiðum sem verkefnið miðar að,
d) starfsferli og faglegum bakgrunni umsækjanda og annarra þátttakenda,
e) fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.

Hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina eða eins og kveðið er á um í samkomulagi vegna fyrri styrkveitinga.
Við mat á umsóknum er starfshópnum heimilt að leita umsagnar fagaðila, gerist þess þörf.
Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir eigi síðar en 31. janúar 2013.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins
  • Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjenda og verður lykilorð sent viðkomandi á netfang sem hann gefur upp við nýskráningu.
  • Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar. Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja mennta- og menningarmálaráðuneyti undir flipanum Umsóknir.
  • Nánari upplýsingar veitir Ásta Ingólfsdóttir í síma 545 9520 eða í tölvupósti á [email protected]

  

Mennta- og menningarmálaráðuneyti

  • Styrkir á sviði lista og menningar - Veitt eru framlög til félaga, samtaka og annarra aðila sem starfa á sviði lista og menningar og ekki hafa aðgang að menningarsamningum eða sjóðum.
  • Styrkir á sviði menningararfs -Veitt eru framlög til félaga, samtaka og annarra aðila sem starfa að varðveislu menningarminja og ekki hafa aðgang að menningarsamningum eða sjóðum.

Styrkir til uppbyggingar landsmótsstaða - Veitt eru framlög til að styðja við uppbyggingu á landsmótssvæðum í samstarfi við sveitarfélög og fleiri aðila.