Yfir sex milljarðar króna í aukna fjárfestingu og vaxtargreinar á næsta ári

Fjármagn til fjárfestingaáætlunar fyrir árin 2013-2015 hefur verið tryggt, en áætlunin var lögð fram með fyrirvara um fjármögnun sl. vor.
Á blaðamannafundi í morgun kynntu fjármála- og efnahagsráðherra og varaformenn stjórnarflokkanna verkefni fyrir rúma sex milljarða króna sem fá viðbótarfjármagn á fjárlögum til að skapa störf og efla fjárfestingu og vaxandi atvinnugreinar.
Þessi nýju verkefni koma til viðbótar fjármagni til samgöngubóta, nýsköpunar og rannsóknasjóða og sóknaráætlana landshluta sem veitt var í fjárfestingaráætlun í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi og fjármagnað var með tekjum af veiðigjöldum. Alls verður því yfir 10 milljörðum króna varið til verkefna á árinu 2013, í samræmi við fjárfestingaáætlun fyrir Ísland.
Markmiðið er aukin fjárfesting og fjölgun starfa, sem hefur jákvæð áhrif á hagvöxt og styrkir tekjugrunn ríkissjóðs.
Fjármögnun fjárfestingaáætlunarinnar er tvíþætt. Annars vegar er fjár til verkefna á sviði samgangna og rannsókna/þróunar aflað með veiðileyfagjaldi, en þau bættust við framkomna samgönguáætlun og voru samþykkt í júni. Fé til rannsóknarsjóða var svo aukið í fjárlagafrumvarpi sem lagt var fram í haust. Hinsvegar eru verkefni sem lúta að eflingu vaxtargreina og fasteigna fjármögnuð með arði og eignasölu.
Tvö frávik eru frá áætluninni frá því hún var kynnt í vor. Annars vegar er ekki komin niðurstaða í flýtingu viðhaldsverkefna á vegum Fasteigna ríkisins. Hins vegar er gert ráð fyrir að fjármögnun Íbúðalánasjóðs vegna leiguíbúða kalli ekki ein og sér á eiginfjárframlag á þessu stigi. Málefni Íbúðalánasjóðs og þörf fyrir aukið eigið fé eru til sérstakrar skoðunar og verður horft til uppbyggingar leiguíbúða í því samhengi.
Framlög til verkefna innan fjárfestingaáætlunar árið 2013 (m.kr.)
| Verkefni fjármögnuð með veiðigjaldi og leigutekjum skv. frjárlagafrumvarpi 2013 | 4.200 | ||
| Samgönguframkvæmdir, aukning | 2.500 | ||
| Rannsóknar- og tækniþróunarsjóður, aukning | 1.300 | ||
| *Sóknaráætlun landshluta | 400 | ||
| Ný verkefni fjármögnuð með arðgreiðslum við 2. umr. fjárlagafrumvarps | 6.130 | ||
| Fasteignir | 3.430 | ||
| Fangelsi | 1.000 | ||
| Hús íslenskra fræða | 800 | ||
| Herjólfur/Landeyjahöfn | 640 | ||
| Náttúruminjasafn/sýning | 500 | ||
| Þekkingarsetur á Kirkjubæjarklaustri | 290 | ||
| Friðuð og friðlýst hús og mannvirki |
200 | ||
| Græna hagkerfið | 1.030 | ||
| Grænn fjárfestingasjóður, nýtt | 500 | ||
| Græna hagkerfið og grænkun fyrirtækja, nýtt | 280 | ||
| Græn skref og vistvæn innkaup, nýtt | 150 | ||
| Grænar fjárfestingar, nýtt | 50 | ||
| Orkuskipti í skipum, nýtt | 50 | ||
| Skapandi greinar | 920 | ||
| Kvikmyndasjóður, aukning | 470 | ||
| Verkefnasjóðir skapandi greina, nýtt | 250 | ||
| Netríkið Ísland, aukning | 200 | ||
| Ferðaþjónusta | 750 | ||
| Uppbygging ferðamannastaða, aukning | 500 | ||
| Innviðir friðlýstra svæða, nýtt | 250 | ||
| Samtals | 10.330 |
*Í fjárfestingaáætluninni var gert ráð fyrir að framlag til sóknaráætlana landshluta yrði fjármagnað af leigutekjum aflaheimilda á Kvótaþingi en frumvarp um breytt fiskveiðistjórnunarkerfi hefur ekki verið afgreitt á Alþingi. Engu að síður er eitt af áherslumálum ríkisstjórnarinnar í fjárlagafrumvarpinu að 0,4 mia.kr. verði varið í sóknaráætlanir landshluta.
Þegar hefur verið greint frá þeim hluta fjárfestingaáætlunarinnar sem fjármagnaður er með veiðileyfagjöldum. Í frumvarpi til fjárlaga kemur fram að 4,2 milljörðum króna sem kemur af gjöldunum verði varið til samgangna, rannsókna og nýsköpunar og sóknaráætlunar landshluta.
Fjárfestingaáætlun fyrir 2013-2015 er liður í nýrri sókn eftir efnahagshrunið og er ætlað að styðja við efnahagsbata og hagvöxt. Áætlunin byggir á þeim rökum að við núverandi stöðu efnahagsmála sé skynsamlegt að verja umtalsverðum hluta þeirra fjármuna sem bundnir hafa verið í bönkum og hluta auðlindagjalda með því fjárfesta með skipulögðum og markvissum hætti í innviðum samfélagsins, í almannaþágu. Þannig styrkist undirstaða hagvaxtar og tekjugrunnur ríkissjóðs til framtíðar.
Við undirbúning fjárfestingaráætlunar og forgangsröðun verkefna var byggt á fyrirliggjandi stefnumótun stjórnvalda í ríkisfjármálum, efnahagsmálum og Ísland 2020.
Fjárfestingaráætlun til þriggja ára
| Liður | Alls árin 2013-2015 | 2013 | 2014 | 2015 |
|---|---|---|---|---|
| Fjármögnun með arði og eignasölu | 18.850 | 6.130 | 6.710 | 6.010 |
| Efling vaxandi atvinnugreina, alls | 8.540 | 2.700 | 3.120 | 2.720 |
| Ferðaþjónusta | 2.250 | 750 | 750 | 750 |
| Uppbygging ferðamannastaða | 1.500 | 500 | 500 | 500 |
| Innviðir friðlýstra svæða | 750 | 250 | 250 | 250 |
| Skapandi greinar | 2.760 | 920 | 920 | 920 |
| Kvikmyndasjóður | 1.410 | 470 | 470 | 470 |
| Verkefnasjóður skapandi greina | 750 | 250 | 250 | 250 |
| Netríkið Ísland | 600 | 200 | 200 | 200 |
| Græna hagkerfi | 3.530 | 1.030 | 1.450 | 1.050 |
| Grænar fjárfestingar | 150 | 50 | 50 | 50 |
| Grænn fjárfestingasjóður | 1.000 | 500 | 500 | |
| Grænkun fyrirtækja | 1.280 | 280 | 500 | 500 |
| Græn skref og vistvæn innkaup | 600 | 150 | 200 | 250 |
| Orkuskipti í skipum | 500 | 50 | 200 | 250 |
| Fasteignir | 10.310 | 3.430 | 3.590 | 3.290 |
| Fangelsi | 2.500 | 1.000 | 1.000 | 500 |
| Herjólfur/Landeyjarhöfn | 2.140 | 640 | 1.300 | 200 |
| Menntavísindahús | 1.300 | 1.300 | ||
| Hús íslenskra fræða | 2.400 | 800 | 800 | 800 |
| Náttúruminjasafn | 500 | 500 | 0 | 0 |
| Friðuð og friðlýst hús og mannvirki |
600 | 200 | 200 | 200 |
| Þekkingarsetur á Kirkjubæjarklaustri | 870 | 290 | 290 | 290 |
Fjárfestingaráætlun til þriggja ára, fjármagnað með veiðigjöldum
| Liður | 2013-2015 | 2013 | 2014 | 2015 |
|---|---|---|---|---|
| 15.600 | 4.200 | 5.700 | 5.700 | |
| Samgöngur, flýting | 7.500 | 2.500 | 2.500 | 2.500 |
| Rannsóknir- og nýsköpun | 5.300 | 1.300 | 2.000 | 2.000 |
| Sóknaráætlun landshluta | 2.800 | 400 | 1.200 | 1.200 |