NOTE: This article is more than 5 years old.
03 mars 2013
/

Nefnd um breytingar á jarðalögum skilar tillögum sínum í formi furmvarpsdraga

Þann 19. desember 2012 skipaði atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra  nefnd til að leggja til breytingar á jarðalögum nr. 81/2004 og eftir atvikum ábúðarlögum nr. 80/2004.
Nefndinni var einkum falið að taka til athugunar eftirtalda þætti:
Skipulagsáætlanir - hvernig gæta megi betur að landbúnaðarhagsmunum og vernd ræktarlands við skipulagsgerð sveitarfélaga og aðra áætlanagerð um nýtingu lands.
Sameign að jörðum - fjöldi jarða er í sameign margra aðila. Ákvarðanataka um nýtingu og ráðstöfun þessara jarða getur reynst vandasöm, bæði meðal sameigenda og út á við. Skoða þarf setningu nýmæla sem dregið gætu úr þeirri óvissu sem fylgir þessari réttarstöðu.
Skyldur samfara eignarhaldi að jörðum: Með jarðalögum 2004 var að mestu leyti horfið frá fyrri markmiðum jarðalöggjafar um að fela byggðarlögum áhrifavald um eignarhald og nýtingu jarða, og að auðvelda bændum og bændaefnum að komast yfir ábýli. Án afturhvarfs til eldri réttar skal nefndin taka til athugunar að gera tillögur sem gætu hamlað svonefndri jarðasöfnun og stuðlað að því að byggilegar jarðir haldist í ábúð.

Nefndin hefur lokið störfum og skilað tillögum sínum í formi frumvarpsdraga. Þar kemur m.a. fram:

Í fyrsta lagi er lögð til ný skilgreining á markmiðum jarðalaga,  horft er til nýrra viðhorfa hvað varðar sjálfbæra nýtingu lands, fæðuöryggis og sértaklega tekið á því að lögunum er ætlað að styrkja búsetu og þróun í héruðum landsins.
Í öðru lagi er lagt til að staða lögbýla sé styrkt og þau öðlist aftur þá stöðu  að vera bújarðir þar sem er föst búseta.
Í þriðja lagi er lagt til að mótuð verði sérstök landnýtingarstefna og að gerður verði landupplýsingagrunnur sem nýtist við framkvæmd laganna.
Í fjórða lagi er lagt að umsýsla við landskipti og lausn lands úr landbúnaðarnotum færist að stórum hluta frá ráðuneyti til sveitarfélaga.Öll stjórnsýsla hvað þetta varðar er einfölduð til muna án þess að telja verði að hagmunum þeim sem lögunum er ætlað að verja sé varpað fyrir róða.
Í fimmta lagi er lagt til ferli við töku ákvarðana á jörðum sem ekki hafa tilnefnt fyrirsvarsmann jarðanna og ætti það að laga það ófremdarástand sem nú ríkir í slíkum málum.
Í sjötta lagi er ákvæði um forkaupsrétt sveitarfélaga sett inn og nákvæmt ferli lagt til við framkvæmd hans.

Ráðherra lagði málið fyrir ríkisstjórarfund 1. mars og sent það Búnaðarþingi til umfjöllunar en þingið verður sett 3. mars.