NOTE: This article is more than 5 years old.
03 mars 2013
/
Ráðstefna um samstarf Færeyinga og Íslendinga í atvinnu- og nýsköpunarmálum

Ráðstefnan sem haldin er í Þórshöfn í Færeyjum þriðjudaginn 5. mars er sú fyrsta sinnar tegundar en stefnt er að því að slík ráðstefna verði haldin til skiptis í löndunum tveimur ekki sjaldnar en á tveggja ára fresti.
Færeyingar voru fyrsta þjóðin sem bauðst til að lána Íslandi eftir hrunið í október 2008. Til að sýna þakklæti sitt í verki ákvað ríkisstjórn Íslands í desember síðastliðnum að gangast fyrir ráðstefnu þar sem fjallað verði um frekari möguleika landanna til samstarfs í atvinnu- og nýsköpunarmálum.
Í viljayfirlýsingu milli landsstjórnar Færeyja og ríkisstjórnar Íslands sem undirrituð verður á ráðstefnunni er áhersla lögð á að þjóðirnar auki samvinnu sín á milli með sérstakri áherslu á atvinnuþróun og nýsköpun.
Dagskrá ráðstefnunnar:
Samstarf Íslendinga og Færeyinga
- 11.00 – 11.10 Johan Dahl atvinnumálaráðherra setur ráðstefnuna
- 11.10 – 11.20 Jørgen Niclasen fjármálaráðherra ræðir samstarf þjóðanna í fjármálum
- 11.20 – 11.35 Katrín Júlíusdóttir fjármála- og efnahagsráðherra fjallar um endurreisn efnahags Íslands
- 11.35 – 11.50 Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra ræðir sóknarfæri Íslands
- 11.50 – 12.00 Ráðherrarnir fjórir undirrita yfirlýsingu um samstarf landanna
12.00 – 13.00 Hádegisverður
Orkumál
- 13.00 – 13.20 Fyrirlestur um orkumál: Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar
- 13.20 – 13.40 Jarðfeingi kynnir áætlanir Færeyinga varðandi endurnýjanlega orku: Kári Mortensen, ráðgjafi hjá Jarðfeingi.
- 13.40 – 13.50 Spurningar
Ferðaþjónusta
- 14.00 – 14.20 Fyrirlestur um ferðaþjónustu og markaðssetningu á Íslandi: Inga Hlín Pálsdóttir forstöðumaður hjá Íslandsstofu
- 14.20 – 14.40 Fyrirlestur um eflingu ferðaþjónustu í Færeyjum: Guðrið Højgaard, forstöðumaður Ferðaráðs Føroya
- 14.40 – 14.50 Spurningar
Skapandi atvinna
- 15.00 – 15.20 Fyrirlestur um nýsköpun og leikjatölvuiðnað: Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP
- 15.20 – 15.40 Efling leikjaiðnaðarins í Færeyjum: Rani Nolsøe, Íverksetarahúsið og Ólavur Ellefsen Simprentis
- 15.40 – 15.50 Spurningar
Kauphöll Íslands og Virðisbrævamarknaður Føroya
- 16.00 – 16.30 Kauphöllin og VMF: Páll Harðarson og Malan Johansen
Atvinnumálaráðherrar Færeyja og Íslands ræða framtíðarsamstarf þjóðanna
- 16.30 – 16.45 Johan Dahl og Steingrímur J. Sigfússon