NOTE: This article is more than 5 years old.
06 mars 2013
/

Menningarstefna samþykkt

Alþingi samþykkti þingsályktun um menningarstefnu.

Alþingi samþykkti þingsályktun um menningarstefnu og er þetta í fyrsta skipti sem samþykkt er sérstök stefna íslenska ríkisins á sviði lista og menningararfs.  Stefnan snýr að verksviði mennta- og menningarmálaráðuneytis í menningarmálum, nema hvað íþróttir og æskulýðsmál falla ekki undir hana.