Ávarp ráðherra á 35 ára afmæli Samtakanna ´78
Þjóðfundur Samtakanna ´78 í tilefni 35 ára afmælis samtakanna
Ávarp Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra
Góðir gestir, ágæta hinsegin fólk.
Samtökin ´78 eru 35 ára og svo sannarlega ástæða til að halda upp á þau tímamót.
Tíminn er afstæður og hann er mislengi að líða. Í mörgu samhengi eru 35 ár skammur tími en ég held að í sögu Samtakanna ´78 sé það einmitt hinsegin - það hefur svo geysilega margt breyst á þessum árum til hins betra í samfélaginu þegar kemur að réttindum hinsegin fólks og viðhorfum almennt.
„Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer“ orti Megas í ljóðinu Tvær stjörnur og enn fremur: „Ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín - og leiði mig á endanum aftur til þín.“ Kannski má einmitt segja að tíminn hafi hugsað hlýlega til hinsegin fólks, stjörnur tvær og tvær hafa loks fengið að nálgast og vera saman á blárri festingunni eins og Megas yrkir um í kvæðinu.
En það er ekki tíminn fyrst og fremst sem hefur unnið með hinsegin fólki. Samtökin ´78 hafa verið óþreytandi í baráttu sinni fyrir mannréttindum hópsins og að mínu áliti verið einstaklega farsæl í starfi og nálgun verkefna. Markvisst fræðslu- og upplýsingastarf inn á við og út í samfélagið hefur skilað miklu. Með jákvæðum og uppbyggilegum skilaboðum, flottum fyrirmyndum og öflugri ímyndarsköpun hefur tekist að gjörbreyta viðhorfum samfélagsins til hinsegin fólks. Hin árlega gleðiganga lýsir þessu í hnotskurn þar sem fólk á öllum aldri, háir og lágir, hinsegin og ekki hinsegin fjölmenna og gleðjast saman yfir fjölbreytileika mannlífsins í öllum sínum regnbogans litum.
Það er óhætt að segja að Ísland standi mjög framarlega þegar kemur að lagalegum réttindum samkynhneigðra með lögum um staðfesta samvist, heimild presta og forstöðumanna trúfélaga til að staðfesta samvist, réttinum til ættleiðinga og rétti til aðstoðar við tæknifrjóvgun. Þá var tvímælalaust bót í nýrri löggjöf um réttarstöðu einstaklinga með kynáttunarvanda. Við getum samt gert betur.
Í nýlegri úttekt á stöðu og réttindum hinsegin fólks í Evrópu lenti Ísland í 10. sæti, einu sæti ofar en árinu áður. Það kom mér satt að segja á óvart að við skyldum ekki skora hærra en ástæðan liggur í ýmsum þáttum sem skorta þykir í stefnu stjórnvalda gagnvart hinsegin fólki.
Góðir gestir.
Framundan hjá ykkur er þjóðfundur til að ræða um starf Samtakanna ´78, forgangsröðun og stefnumál framtíðarinnar. Ég bíð spennt eftir að heyra niðurstöðurnar og óska ykkur ánægjulegrar og uppskeruríkrar umræðu.
- - - - - - - - - - - - -
(Talað orð gildir)