Afmælis- og baráttufundur SÁÁ 10. október 2013

Ávarp Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra
Góðir gestir.
Mikið vatn er til sjávar runnið frá því að Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann voru stofnuð fyrir réttum 36 árum. Margt hefur breyst og margt áunnist en engu að síður stöndum við frammi fyrir því að mikið verk er að vinna.
Ég met mikils allt það góða starf sem SÁÁ stendur fyrir, það er geysilega mikils virði. Með tilkomu Vogs var viðurkennt af samfélaginu að áfengis- og vímuefnafíkn sé sérstakur sjúkdómur sem okkur ber að takast á við. Það er ekki síst fyrir atorku þess eljusama og fjölbreytta hóps sem borið hefur uppi starf SÁÁ sem þetta fékkst viðurkennt á sínum tíma. Þetta fólk hefur unnið mikið og óeigingjarnt starf. Það ber að þakka.
Æviskeið sérhvers einstaklings sem fer forgörðum er tap og mikill missir í öllum skilningi. Það er því ómetanlegt þegar hægt er að forða tapi með því að losa fólk úr viðjum fíknarinnar. Mest um vert þykir mér þegar unnt er að forða fólki í blóma lífsins frá því að ánetjast áfengi eða öðrum vímuefnum, - hjálpa ungmennum svo þau megi lifa góðu lífi án samfylgdar við Bakkus og hið illa föruneyti hans.
Um síðustu helgi las ég áhugavert viðtal við Þórarinn Tyrfingsson í sunnudagsútgáfu Morgunblaðsins. Það var ánægjulegt að lesa um staðfestu hans gagnvart verkefninu sem SÁÁ stendur frammi fyrir. Þar segir hann meðal annars „Við erum ekkert að gefast upp. Við munum halda áfram að vinna eins og hægt er.“
Á þeim tímum sem við nú lifum er mikilvægt að missa ekki trú á verkefninu sem við blasir heldur nálgast það lausnamiðað. Allir,- fagmenn, stjórnmálamenn og almenningur, verða að leggjast saman á árarnar. Þannig og einungis þannig sigrumst við á þeim áskorunum sem við er að glíma. Það er vel hægt.
Ég óska ykkur allra heilla.
Áfram Vogur!
Áfram SÁÁ!