Dagur gegn einelti 8. nóvember 2013

Góðir gestir.
Í dag er dagur gegn einelti haldinn í hátíðlegur í þriðja sinn og er markmiðið að vekja sérstaka athygli á málefninu og hversu alvarlegt einelti er. Í tengslum við baráttudaginn árið 2011 var undirritaður þjóðarsáttmáli gegn einelti og í dag hafa um 14.500 einstaklingar skrifað undir hann á vefsíðunni Gegn einelti.is.
Við undirritun skuldbindum við okkur til þess að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar. Við heitum þess að standa vörð um rétt fólks til þess að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt, auk þess að leggja sérstaka áherslu á að gæta réttar barna og ungmenna sem og allra annarra hópa sem ekki eiga sér málsvara eða sterka rödd. Með undirritun þjóðarsáttmála gegn einelti skuldbindum við okkur til þess að hafa áhrif til góðs á nánasta umhverfi okkar. Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til þess að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er.
Því miður hafa flestir orðið vitni að einelti í einhverri mynd einhvern tíma á lífsleiðinni, hvort sem er í skóla, á vinnustað eða við aðrar kringumstæður. Allur gangur er á því hvort og hvernig hefur verið tekið á eineltismálum í gegnum tíðina en sem betur fer hefur skilningur á því að það verði að bregðast við á markvissan hátt farið vaxandi ár frá ári. Það er líka hin sameiginlega ábyrgð okkar allra sem skiptir svo miklu máli og mikilvægt að sé fólki ljós, börnum sem fullorðnum. Það er nefnilega þannig að sá sem situr hjá og þegir er lítið skárri en sá sem gerir og segir. Þeir sem verða vitni að einelti en bregðast ekki við bera mikla ábyrgð, því þannig getur einelti þrifist og dafnað í skjóli þagnar og aðgerðaleysis.
Án efa er eitt mikilvægasta vopnið í baráttunni gegn einelti að gera þessa ábyrgð skýra og ljósa fyrir hverjum og einum, - ekki síst að undirstrika meðsektina sem felst í því að samþykkja einelti með þögninni. Ef okkur tekst að skapa afdráttarlaust viðhorf í samfélaginu um að einelti sé ekki liðið undir neinum kringumstæðum mun það ekki þrífast – en til þess þurfum við öll að taka höndum saman. Við eigum að nýta okkur þá reynslu sem við höfum, læra af því sem vel hefur verið gert og skoða jafnframt helstu mistök þannig að við getum forðast þau í framtíðinni.
Í samræmi við aðgerðaráætlun stjórnvalda gegn einelti á vinnustöðum, í skólum og í samfélaginu almennt var ráðist í að endurskoða reglugerð um aðgerðir gegn einelti á vinnustöðum. Ákveðið var að víkka út svið hennar og í fyrirliggjandi drögum heitir hún nú reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustað og mun því ekki einungis fjalla um einelti heldur einnig ofbeldi og aðra ólíðandi háttsemi á vinnustöðum. Reglugerðin var sett í opið umsagnarferli síðastliðið vor og verið er að vinna úr þeim ábendingum sem bárust. Nauðsynlegt er að setja inn lagastoð fyrir reglugerðinni í lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Vinna við gerð frumvarps vegna þessarar breytingar er á lokastigum í ráðuneytinu.
Góðir gestir.
Öll getum við verið sammála um að einelti á ekki að umbera í samfélaginu undir neinum kringumstæðum. Ég vil að lokum þakka þeim sem á hverjum degi leggja lóð sitt á vogarskálarnar með því að ástunda jákvæð og uppbyggileg samskipti við annað fólk, hvort sem í hlut eiga nemendur, samstarfsfólk á vinnustað, fjölskyldumeðlimir inn á heimilum eða einhverjir aðrir. Auk þess vil ég hvetja alla til að fara inn á heimasíðuna „Gegn einelti.is“ og skrifa undir þjóðarsáttmála gegn einelti.
Góðir gestir. Nú er komið að því að veita sérstaka viðurkenningu sem tengist efni dagsins. Ég er svo heppin að fá að segja frá hver hana hlýtur og gera grein fyrir rökstuðningi að baki þeirri ákvörðun:
Viðurkenning á degi gegn einelti 2013.
Í dag, 8. nóvember 2013, er árlegur baráttudagur gegn einelti. Á síðasta ári fékk kvennalandsliðið í knattspyrnu sérstaka viðurkenningu á degi gegn einelti fyrir skilaboð gegn einelti og mikilvægi þess að fagna fjölbreytileikanum en þá var slík viðurkenning veitt í fyrsta skipti.
Í tilefni dagsins hefur verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti ákveðið að veita Þorláki Helga Helgasyni framkvæmdastjóra Olweusarverkefnisins gegn einelti viðurkenningu fyrir ötult starf í baráttunni gegn einelti í skólasamfélaginu.
Olweusaráætlunin gegn einelti hefur verið virk á Íslandi í rúman áratug eða frá árinu 2002. Olweusaráætlunin teygir sig inn í allt skólasamfélagið og hefur í mörgum skólum gjörbreytt vinnulagi. Verkefnið hefur í rúman áratug lagt drjúgan skerf til skólaþróunar í landinu. Yfir 80 skólar hafa verið hluti af áætluninni og yfir 100 þúsund nemendur hafa samtals tekið þátt í könnunum sem lagðar eru fyrir í skólunum á hverju ári. Um 80 verkefnastjórar hafa verið menntaðir til að verða faglegir leiðbeinendur í skólunum, styðja við innleiðingu Olweusaráætlunarinnar og til að halda kerfinu við. Mikilvæg þekking, reynsla og hæfni hefur orðið til í skólasamfélaginu með verkefninu. Reynsla kennara og annarra starfsmanna hefur einnig færst milli skóla sem ekki teljast sérstaklega Olweusarskólar. Þorlákur Helgason hefur verið umsjónarmaður Olweusaráætlunarinnar hér á landi frá upphafi og sat áður í starfshópi á vegum menntamálaráðuneytisins um mótun aðgerða gegn einelti í skólum.
Verkefnið var í fyrstu rekið sem tilraunaverkefni í samstarfi ýmissa aðila en undanfarin ár hefur Þorlákur verið sjálfstæður framkvæmdastjóri Olweusarverkefnisins og hefur notið stuðnings stjórnvalda og annarra aðila til að halda verkefninu gangandi. Sem umsjónarmaður Olweusaráætlunarinnar hefur hann tengst ýmsum þáttum
skólastarfs, ekki síst þeim sem beint eða óbeint varða velferð nemenda og allra aðila í skólasamfélaginu. Hann hefur miðlað þekkingu og reynslu vítt og breitt innanlands og veitir þátttökuskólunum stuðning við innleiðingu og ráðgjöf um eineltismál og skólabrag. Hann hefur sýnt mikla þrautseigju og úthald við að halda Olweusaráætlunni gangandi og unnið að ýmsum þróunarverkefnum til að bæta verkefnið enn frekar. Einnig sér hann um framkvæmd árlegrar könnunar á umfangi eineltis í þátttökuskólunum og sér um kynningu á niðurstöðum og veitir ráðgjöf um úrbætur. Þorlákur hefur haft óbilandi trú á Olweusaráætluninni og lagt mikið á sig við að stuðla að útbreiðslu hennar, vexti og viðgangi. Í þeim skólum sem hafa unnið markvisst að innleiðingu áætlunarinnar hefur umtalsverður viðvarandi árangur náðst í því að draga úr einelti og bæta skólabrag og jafnframt mótast verklag þar sem brugðist er markvisst við einelti sem upp kemur.
Þorlákur er vel að þessari viðurkenningu kominn og um leið og við óskum honum hjartanlega til hamingju vonumst við til þess að hann haldi ótrauður áfram í baráttunni gegn einelti í skólum og samfélaginu öllu.
Helga Birgisdóttir hannaði hvatningarverðlaunin en hún gengur undir listamannanafninu, Gegga. Verðlaunin eru sérútbúið "Smiler" verk ásamt litlu málverki sem málað er með íslenskum leir.
- - - - - - - - - - - - -
(Talað orð gildir)