Afhending Hvatningarverðlauna Öryrkjabandalags Íslands

Ávarp Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra
Alþjóðlegur dagur fatlaðs fólks 3. desember 2013
Herra forseti Íslands og aðrir góðir gestir.
Ég óska gestum og landsmönnum öllum innilega til hamingju með daginn sem er alþjóðlegur dagur fatlaðs fólks samkvæmt ákvörðun Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1982.
Þetta er mikilvægur dagur, jafnt fyrir fatlað fólk og ófatlað. Þetta er mikilvægur dagur fyrir samfélagið. Hann er enda haldinn hátíðlegur í fjölmörgum löndum og því getum við hugsað til þess að víðsvegar um heiminn er í dag efnt til margvíslegra viðburða til að vekja athygli á aðstæðum fatlaðs fólks, fagna því sem vel er gert og benda á það sem betur má fara.
Brjótum múra, opnum dyr að samfélagi án aðgreiningar og þróun þess í allra þágu er yfirskrift dagsins að þessu sinni. Bent er á nauðsyn þess að alþjóðasamfélagið sameinist um stefnu og aðgerðir sem færa okkur nær markmiðinu um samfélag fyrir alla – samfélag sem virðir og verndar rétt hvers og eins og stuðlar að jöfnum tækifærum.
Sameinuðu þjóðirnar benda á að meira en milljarður jarðarbúa, eða um 15%, býr við fötlun af einhverju tagi en hlutfallslega eru fatlaðir mun fleiri í hópi þeirra sem búa við fátækt í heiminum. Fólk með fötlun er líklegra en aðrir til að sæta ójöfnuði og mæta hindrunum sem sýna sig til dæmis í verri aðgangi að menntun, heilbrigðisþjónustu og fleiri mikilvægum þáttum. Sameinuðu þjóðirnar leggja áherslu á að draga fram staðreyndir sem varpa ljósi á þetta misrétti og jafnframt að auka sýnileika fatlaðs fólk. Markmiðið er að ýta undir að stefnumótun og aðgerðir á öllum sviðum samfélagsins taki mið af ólíkum þörfum og auknu jafnræði borgaranna en raunin sýnir að á þetta skortir verulega.
Góðir gestir.
Við erum hér samankomin til þess að fagna því sem vel er gert og vekja athygli á ýmsum verkefnum sem unnin hafa verið af hugmyndaríku hugsjónafólki sem vill með starfi sínu stuðla að einu samfélagi fyrir alla. Það er gleðilegt að sjá hvað margt er gott gert í þessu skyni og ég vil óska öllum þeim sem tilnefndir eru til Hvatningarverðlauna Öryrkjabandalags Íslands innilega til hamingju – jafnt fyrir góðan árangur en ekki síður fyrir þann einbeitta vilja til þess að bæta samfélagið sem verkefnin bera með sér.
- - - - - - - - - - - - -
(Talað orð gildir)