Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið janúar – desember 2014
Fimmtudaginn 12. desember 2013, rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópubandalaginu fyrir tímabilið janúar – desember 2014.
Samtals bárust nítján gild tilboð í tollkvótann.
Nautgripakjöt í vörulið 0202.Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á nautgripakjöti, samtals 334.100 kg. á meðalverðinu 293 kr./kg. Hæsta boð var 601 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 100.000 kg. á meðalverðinu 460 kr./kg.
Svínakjöt í vörulið 0203.Níu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á svínakjöti, samtals 615.000 kg. á meðalverðinu 125 kr./kg. Hæsta boð var 270 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sex fyrirtækjum um innflutning á 200.000 kg. á meðalverðinu 200 kr./kg.
Alifuglakjöt, í vörulið 0207.Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, samtals 819.507 kg á meðalverðinu 414 kr./kg. Hæsta boð var 700 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 200.000 kg á meðalverðinu 616 kr./kg.
Kjöti og ætum hlutum af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;...(**) í vörulið ex 0210.Sjö tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á kjöti og ætum hlutum af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;...(**), samtals 45.250 kg. á meðalverðinu 120 kr./kg. Hæsta boð var 215 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 45.250 kg. á meðalverðinu 120 kr./kg.
Ostar og ystingur í vörulið 0406. Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 169.600 kg. á meðalverðinu 296 kr./kg. Hæsta boð var 435 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 80.000 kg. á meðalverðinu 410 kr./kg.
Ostur og ystingur í vörulið ex 0406;...(**). Fjögur tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið ex 0406...(**) samtals 37.000 kg. á meðalverðinu 318 kr./kg. Hæsta boð var 465 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 20.000 kg. á meðalverðinu 434 kr./kg.
Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti.... í vörulið 1601. Níu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á pylsum og þess háttar vörum úr kjöti.... á vörulið 1601, samtals 66.250 kg. á meðalverðinu 123 kr./kg. Hæsta boð var 205 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 50.000 kg. á meðalverðinu 142 kr./kg.
Annað kjöt.... í vörulið 1602. Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti.... á vörulið 1602, samtals 200.000 kg. á meðalverðinu 299 kr./kg. Hæsta boð var 600 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 50.000 kg. á meðalverðinu 505 kr./kg.
Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-neytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:
Kjöt af nautgripum, fryst, 0202
| Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
|---|---|
| 600 | Ekran ehf |
| 10.000 | Íslenskar matvörur ehf |
| 30.000 | Kjarnafæði ehf. |
| 17.500 | Sælkeradreifing ehf |
| 41.900 | Ölgerð Egils Skallagrímssonar ehf |
Svínakjöt, fryst, 0203
| Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
| 3.000 | Íslenskar matvörur ehf |
| 40.000 | Kaupás hf |
| 60.000 | Kjarnafæði ehf |
| 84.000 | Mata ehf |
| 3.000 | Sælkeradreifing ehf |
| 10.000 | Ölgerð Egils Skallagrímssonar ehf |
Kjöt af alifuglum, fryst, 0207
| Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
| 104.493 | Aðföng hf |
| 500 | Ekran ehf |
| 50.000 | Innnes ehf |
| 30.007 | Mata ehf |
| 15.000 | Sælkeradeifing ehf |
Kjöt og ætir hlutar af dýrum.. ex 0210
| Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
| 20.000 | Aðföng hf |
| 5.000 | Innnes ehf |
| 5.000 | Íslenskar matvörur ehf |
| 2.000 | Kaupás hf |
| 3.000 | Perlukaup ehf |
| 10.000 | Sælkeradreifing ehf |
| 250 | Xata ehf |
Ostur og ystingur 0406
| Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
| 10.000 | Aðföng hf |
| 5.000 | Ekran ehf |
| 27.000 | Innnes ehf |
| 5.000 | Íslenskar matvörur ehf |
| 3.000 | KCF ehf |
| 10.000 | Mjólkursamsalan |
| 20.000 | Sólstjarnan ehf |
Ostur og ystingur ex 0406
| Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
| 14.000 | Innnes ehf |
| 4.000 | Kaupás hf |
| 2.000 | Mjólkursamsalan |
Pylsur og þess háttar vörur 1601
| Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
| 29.750 | Aðföng hf |
| 3.000 | Innnes ehf |
| 6.000 | Íslenskar matvörur ehf |
| 1.000 | Kaupás hf |
| 3.000 | Rain ehf |
| 4.000 | SP Company ehf |
| 3.000 | Sælkeradreifing ehf |
| 250 | Xata ehf |
Annað kjöt, hlutar úr dýrum.. 1602
| Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
| 7.000 | Ekran ehf |
| 5.250 | Innnes ehf |
| 2.000 | Íslenskar matvörur ehf |
| 3.000 | KFC ehf |
| 8.000 | Sólstjarnan ehf |
| 14.000 | Sælkeradreifing ehf |
| 750 | Zilia ehf |
| 10.000 | Ölgerð Egils Skallagrímssonar ehf |
Reykjavík, 19. desember 2013